Óðinn Þór Ríkharðsson, hornamaðurinn knái í danska liðinu GOG, á eitt af fimm fallegustu mörkunum sem skoruð voru í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í handknattleik um síðustu helgi.
Óðinn Þór skoraði skemmtilegt mark úr hraðaupphlaupi í öruggum sigri GOG á útivelli gegn sænska liðinu Kristianstad en hann kastaði boltanum í netið aftur fyrir bakið.
Á myndskeiðinu má sjá fimm fallegustu mörkin sem skoruð voru í Meistaradeildinni að mati EHF.