Í hádeginu var dregið til 16-liða úrslitanna í Coca Cola-bikarkeppni karla og kvenna í handknattleik.
Stórleikurinn hjá körlunum er viðureign Hauka og Vals en bikarmeistarar FH-inga sækja Gróttu heim. Leikirnir í 16-liða úrslitunum fara fram 21. nóvember.
Í 16-liða úrslitum í karlaflokki mætast:
Stjarnan - HK
Afturelding - KA
Haukar - Valur
Grótta - FH
Þróttur - ÍBV
Fjölnir - Fram
Mílan - ÍR
Þór Akureyri - Selfoss
Stórleikurinn í 16-liða úrslitunum í kvennaflokki verður leikur Stjörnunnar og Fram en bikarmeistarar Vals sitja yfir í 16-liða úrslitunum. Leikirnir í 16-liða úrslitunum fara fram 6. nóvember.
Í 16-liða úrslitum í kvennaflokki mætast:
Selfoss - KA/Þór
Haukar - ÍBV
HK - Afturelding
Fylkir - Fjölnir
ÍR - Grótta
Víkingur - FH
Stjarnan - Fram
Valur situr hjá