Þýska stórliðið THW Kiel er greinilega ánægt með eftirmann Alfreðs Gíslasonar og hefur gert nýjan samning við Filip Jicha.
Félagið tilkynnti þetta í gær og Jicha er nú samningsbundinn Kiel út keppnistímabilið 2022-2023.
Jicha er Tékki og lék lengi með liðinu undir stjórn Alfreðs. Hann tók við af Alfreð sumarið 2019 þegar Alfreð lét af störfum að eigin ósk.