Karlalið Aftureldingar mun ekki taka þátt í Evrópubikarnum í handbolta eins og til stóð vegna kórónuveirufaraldursins.
Afturelding átti að leika við Granitas-Karys frá Litháen 14. nóvember og aftur 21. nóvember en Litháíska liðið fer sjálfkrafa áfram í þriðju umferð keppninnar.
„Vegna ferðatakmarkana og sóttvarnarákvæða af völdum kórónuveirufaraldursins, sér stjórn handknattleiksdeildar Afturelding sér ekki fært annað en að draga karlalið sitt úr Evrópukeppninni í handbolta í ár.