Vinstri hornamaðurinn Stefán Rafn Sigurmannsson verður líklegast ekki með Haukum gegn Val í úrslitaeinvígi liðanna um Íslandsmeistaratitil karla í handbolta.
Stefán Rafn fór af velli í fyrri hálfleik í þann mund sem hann skoraði fjórða markið sitt. Landsliðsmaðurinn hélt um lærið er hann haltraði út af og er að öllum líkindum tognaður.
Haukar tryggðu sér sæti í úrslitunum með naumum samanlögðum sigri á Stjörnunni, þrátt fyrir 29:32-tap í kvöld. Haukar unnu fyrri leikinn með fimm mörkum og fara því áfram. Valur vann ÍBV í spennandi einvígi.