Helga fyrst í fimmganginum

Jakob S. Sigurðsson vann fimmganginn í fyrra.
Jakob S. Sigurðsson vann fimmganginn í fyrra.

Meistaradeildin í hestaíþróttum heldur áfram á fimmtudagskvöldið. Keppt er í fimmgangi og ráslistinn er klár. Helga Una Björnsdóttir er fyrst í braut en hún keppir fyrir lið Hrímnis/Export hesta.

Jakob S. Sigurðsson vann þessa grein í fyrra á Ský frá Skálakoti en þeir félagar eru skráðir til leiks. Sylvía Sigurbjörnsdóttir og Teitur Árnason voru einnig í A-úrslitum í fyrra og mæta þau með sömu hesta, Sylvía mætir með Héðin Skúla frá Oddhóli en Teitur með Sjóð frá Kirkjubæ.

Þórarinn Ragnarsson, Viðar Ingólfsson og Guðmundur Björgvinsson voru líka í úrslitum en þeir mæta allir með nýja hesta. Það eru margir spennandi hestar skráðir til leiks, gamlar kempur sem og nýjar óreyndar vonarstjörnur. Einn villiköttur er skráður til leiks og keppir hann fyrir hönd Torfhús retreat en gaman verður að sjá hver það er!

Mótið fer fram í Samskipahöllinni hjá Spretti en húsið verður opnað kl. 17:00 og hefst keppni kl. 19:00.

Ráslisti - Fimmgangur F2*

Nr. Knapi Hestur Faðir Móðir Lið
1 Helga Una Björnsdóttir Hrímnir/Export hestar
2 Sigurður Sigurðarson Gangmyllan
3 Viðar Ingólfsson Hængur frá Bergi Álffinnur frá Syðri-Gegnishólum Hrísla frá Naustum Hrímnir/Export hestar
4 Bergur Jónsson Spurning frá Syðri-Gegnishólum Álffinnur frá Syðri-Gegnishólum Mylla frá Selfossi Gangmyllan
5 Olil Amble Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum Keilir frá Miðsitju Álfadís frá Selfossi Gangmyllan
6 Ásmundur Ernir Snorrason Kaldi frá Ytra-Vallholti Knár frá Ytra-Vallholti Apríl frá Skeggsstöðum Auðsholtshjáleiga
7 Villiköttur Torfhús retreat
8 Matthías Leó Matthíasson Galdur frá Leirubakka Glymur frá Flekkudal Skylda frá Leirubakka Top Reiter
9 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Hrafnar frá Auðsholtshjáleigu Aron frá Strandarhöfði Gígja frá Auðsholtshjáleigu Auðsholtshjáleiga
10 Teitur Árnason Sjóður frá Kirkjubæ Sær frá Bakkakoti Þyrnirós frá Kirkjubæ Top Reiter
11 Sigurður Vignir Matthíasson Milljarður frá Barká Rökkvi frá Hárlaugsstöðum Þota frá Dalsmynni Ganghestar/Margrétarhof
12 Ragnhildur Haraldsdóttir Þróttur frá Tungu Þokki frá Kýrholti Sól frá Tungu Ganghestar/Margrétarhof
13 Sylvía Sigurbjörnsdóttir Héðinn Skúli frá Oddhóli Grunur frá Oddhóli Folda frá Lundi Auðsholtshjáleiga
14 Hinrik Bragason Byr frá Borgarnesi Hlynur frá Haukatungu Syðri 1 Ísold frá Leirulækjarseli 2 Hestvit/Árbakki/Export hestar
15 Þórarinn Ragnarsson Ronja frá Vesturkoti Spuni frá Vesturkoti Hrafnhetta frá Steinnesi Hrímnir/Export hestar
16 Árni Björn Pálsson Jökull frá Breiðholti í Flóa Huginn frá Haga I Gunnvör frá Miðsitju Top Reiter
17 Guðmundur Björgvinsson Elrir frá Rauðalæk Arnþór frá Auðsholtshjáleigu Elísa frá Feti Lífland
18 Sigurbjörn Bárðarson Flóki frá Oddhóli Ás frá Ármóti Fía frá Oddhóli Torfhús retreat
19 Gústaf Ásgeir Hinriksson Sproti frá Innri-Skeljabrekku Kvistur frá Skagaströnd Nánd frá Miðsitju Hestvit/Árbakki/Export hestar
20 Jakob Svavar Sigurðsson Skýr frá Skálakoti Sólon frá Skáney Vök frá Skálakoti Lífland
21 Arnar Bjarki Sigurðarson Snillingur frá Íbishóli Vafi frá Ysta-Mó Ósk frá Íbishóli Torfhús retreat
22 Hanna Rún Ingibergsdóttir Dropi frá Kirkjubæ Kiljan frá Steinnesi Dögg frá Kirkjubæ Lífland
23 Hulda Gústafsdóttir Roði frá Brúnastöðum 2 Alvar frá Brautarholti Evíta frá Litla-Garði Hestvit/Árbakki/Export hestar
24 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Brimnir frá Efri-Fitjum Hnokki frá Fellskoti Ballerína frá Grafarkoti Ganghestar/Margrétarhof

* Knapar lentu í smá vandræðum í sambandi við æfingatíma en vegna veðurs gátu fjögur lið ekki nýtt lokaæfingatímann og vegna þess gætu hestar breyst hjá þeim liðum og hesta vantar í ráslistann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert