Framtíð körfuboltans hjá Þór tryggð

Þór tryggði sér sæti í efstu deild með sigri í …
Þór tryggði sér sæti í efstu deild með sigri í 1. deildinni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Karlalið Þórs mun leika í efstu deild karla í körfubolta í vetur. Í gær var greint frá að til stæði að draga liðið úr keppni vegna skorts á mannafli í starfi körfuknattleiksdeildarinnar. Þór sendi frá sér yfirlýsingu í dag, þar sem félagið staðfestir að liðið ætlar að vera með. 

Hér að neðan má sjá yfirlýsingu Þórsara, en í henni kemur fram að vel heppnaður fundur hafi skilað tilætluðum árangri í að tryggja framtíð liðsins. 

Yfirlýsing Þórs: 

Karlalið Þórs mun leika í Dominos-deildinni í vetur eins og til stóð.

Í gær var greint frá því á vefnum karfan.is sem og mbl.is að til stæði að draga karlalið Þórs úr keppni í Dominos-deildinni sökum þess hve fáar hendur komi að starfinu.

Rétt er að stjórnin var heldur fámenn og því var boðað til samstöðufundar í Hamri þar sem framtíð körfuboltans yrði rædd.

Á fimmta tug áhugafólks mætti á fundinn og gott spjall var tekið um stöðu körfuboltans hjá Þór. Fór svo að fram stigu fimm einstaklingar sem buðu sig fram til stjórnarsetu ásamt núverandi stjórn.

Auk þessa steig upp fjöldi stuðningsmanna sem bauð sig fram í hin ýmsu fjáröflunarverkefni.

Tekið skal fram að þótt nú hafi margar hendur bæst í bakvarðarsveit deildarinnar er enn pláss fyrir áhugasamt fólk sem vill leggja deildinni lið og vinna með skemmtilegu fólki við áframhaldandi uppbyggingu körfuboltans á Akureyri.

Karlalið Þórs er jú í efstu deild og þar vilja menn og telja sig eiga heima ekki bara í dag heldur í framtíðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert