Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu báðir í Vestmannaeyjum í morgun. Var 50 tonnum landað úr Bergey og 40 tonnum úr Vestmannaey, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar.
Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, segir um heldur stuttan túr að ræða. „Skipin fóru út á mánudag eftir hádegi að aflokinni þjóðhátíðarhelgi og farið var austur að Ingólfshöfða. Nú er komið að lokum kvótaárs og þá þarf gjarnan að leggja áherslu á að veiða ýmsar tegundir en forðast aðrar.“
Of mikil ýsa var á þeim slóðum er veiðin hófst að sögn skipstjórans. „En ýsukvótinn er uppurinn. Við þurftum því að færa okkur og reyna að eltast við aðrar tegundir sem gekk misjafnlega. Annars er ekkert hægt að kvarta því við vorum bara einn og hálfan sólarhring að veiðum, en megnið af aflanum kom þó á örfáum klukkutímum. Þetta er ekkert nýtt því síðustu dagar kvótaárs eru oft skrýtnir. Þá er verið að veiða þær tegundir sem eftir standa og gjarnan langt siglt til að leita þær uppi. Það hefur gengið afar vel hjá okkur að veiða ýsu á kvótaárinu og ýsa virðist vera út um allan sjó, en nú er ýsukvótinn búinn og þá verða menn að leita að öðrum tegundum og vonandi á það eftir að ganga vel.“
Fram kemur að bæði Vestmannaey og Bergey halda til veiða á ný í fyrramálið.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.3.24 | 559,44 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.3.24 | 503,99 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.3.24 | 331,72 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.3.24 | 216,50 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.3.24 | 220,69 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.3.24 | 222,80 kr/kg |
Gullkarfi | 18.3.24 | 233,55 kr/kg |
Litli karfi | 18.3.24 | 10,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 18.3.24 | 194,27 kr/kg |
18.3.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 10.868 kg |
Ýsa | 818 kg |
Langa | 137 kg |
Keila | 127 kg |
Steinbítur | 87 kg |
Ufsi | 4 kg |
Samtals | 12.041 kg |
18.3.24 Straumey EA 50 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.803 kg |
Ýsa | 146 kg |
Steinbítur | 54 kg |
Samtals | 4.003 kg |
18.3.24 Ás NS 78 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.198 kg |
Þorskur | 772 kg |
Skarkoli | 197 kg |
Samtals | 3.167 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.3.24 | 559,44 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.3.24 | 503,99 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.3.24 | 331,72 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.3.24 | 216,50 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.3.24 | 220,69 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.3.24 | 222,80 kr/kg |
Gullkarfi | 18.3.24 | 233,55 kr/kg |
Litli karfi | 18.3.24 | 10,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 18.3.24 | 194,27 kr/kg |
18.3.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 10.868 kg |
Ýsa | 818 kg |
Langa | 137 kg |
Keila | 127 kg |
Steinbítur | 87 kg |
Ufsi | 4 kg |
Samtals | 12.041 kg |
18.3.24 Straumey EA 50 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.803 kg |
Ýsa | 146 kg |
Steinbítur | 54 kg |
Samtals | 4.003 kg |
18.3.24 Ás NS 78 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.198 kg |
Þorskur | 772 kg |
Skarkoli | 197 kg |
Samtals | 3.167 kg |