Umhverfisstofnun Síle hefur ákveðið að sekta norska laxeldisrisann Mowi um 5,3 milljarða síleskra pesóa, jafnvirði 910 milljóna íslenskra króna. Um er að ræða hæstu sekt sem veitt hefur verið fyrir umhverfisbrot í Suður-Ameríku.
Málið má rekja til þess að í óveðri árið 2018 sluppu 690 þúsund laxar úr sjókvíum við Punta Redonda í Los Lagos-héraði í Síle, um þúsund kílómetra suður af höfuðborginni Santiago.
Stofnunin segir í tilkynningu að atvikið hafi orsakað „óbætanleg umhverfisspjöll“ og er vísað til þess að laxinum hafi verið gefið sýklalyf sem ekki er ætlað til manneldis og fiskurinn sé framandi rándýr sem sé líklegt til þess að hafa skaðleg áhrif á svæðisbundnar tegundir auk þess sem hann kunni að breyta búsvæðum sjávar.
Síleska umhverfisstofnunin telur einnig að þetta hafi í för með sér hættu hjá öðrum eldisstöðvum þar sem strokulaxinn geti borið með sér sýkla og sjúkdóma.
Þá var Mowi jafnframt sektað um 2,7 milljónir pesóa, jafnvirði um 474 þúsund íslenskra króna, fyrir búa ekki yfir fullnægjandi slátrunaraðstöðu til þess að farga dauðum fiski. Mowi hefur ekki brugðist við sektinni að svo stöddu en hefur tvær vikur til þess að áfrýja henni.
Laxeldisiðnaðurinn í Síle er sá næststærsti í heimi á eftir Noregi en notar 1.400 sinnum meira af sýklalyfjum á hvert framleitt tonn en eldisstöðvar í Noregi, að sögn umhverfissamtakanna Oceana.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 19.9.24 | 606,32 kr/kg |
Þorskur, slægður | 19.9.24 | 383,70 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 19.9.24 | 279,12 kr/kg |
Ýsa, slægð | 19.9.24 | 249,00 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.9.24 | 253,40 kr/kg |
Ufsi, slægður | 19.9.24 | 322,53 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 19.9.24 | 329,86 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
19.9.24 Kristján HF 100 Lína | |
---|---|
Keila | 309 kg |
Þorskur | 268 kg |
Karfi | 111 kg |
Steinbítur | 38 kg |
Ufsi | 16 kg |
Ýsa | 5 kg |
Samtals | 747 kg |
19.9.24 Særif SH 25 Lína | |
---|---|
Þorskur | 1.488 kg |
Keila | 367 kg |
Ýsa | 62 kg |
Steinbítur | 58 kg |
Karfi | 25 kg |
Samtals | 2.000 kg |
19.9.24 Elli P SU 206 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.183 kg |
Ýsa | 1.120 kg |
Keila | 155 kg |
Langa | 50 kg |
Steinbítur | 37 kg |
Samtals | 4.545 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 19.9.24 | 606,32 kr/kg |
Þorskur, slægður | 19.9.24 | 383,70 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 19.9.24 | 279,12 kr/kg |
Ýsa, slægð | 19.9.24 | 249,00 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.9.24 | 253,40 kr/kg |
Ufsi, slægður | 19.9.24 | 322,53 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 19.9.24 | 329,86 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
19.9.24 Kristján HF 100 Lína | |
---|---|
Keila | 309 kg |
Þorskur | 268 kg |
Karfi | 111 kg |
Steinbítur | 38 kg |
Ufsi | 16 kg |
Ýsa | 5 kg |
Samtals | 747 kg |
19.9.24 Særif SH 25 Lína | |
---|---|
Þorskur | 1.488 kg |
Keila | 367 kg |
Ýsa | 62 kg |
Steinbítur | 58 kg |
Karfi | 25 kg |
Samtals | 2.000 kg |
19.9.24 Elli P SU 206 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.183 kg |
Ýsa | 1.120 kg |
Keila | 155 kg |
Langa | 50 kg |
Steinbítur | 37 kg |
Samtals | 4.545 kg |