Kæli- og burðargeta lykilatriði

Fullkomið skip. Nýr Vilhelm Þorsteinsson EA við bryggju í Karstensens-skipasmíðastöðinni …
Fullkomið skip. Nýr Vilhelm Þorsteinsson EA við bryggju í Karstensens-skipasmíðastöðinni í Skagen í Danmörku. Skipið er vel búið í alla staði. Ljósmynd/Karstensens

Eftir um þrjá mánuði er nýtt og fullkomið uppsjávarskip væntanlegt til Samherja á Akureyri. Kristján Vilhelmsson, útgerðarstjóri Samherja, segir skipið svara kröfum um mikla kæligetu og stór lestarrými. Skipið er stórt sem ekki veitir af í sókn á fjarlægð mið og m.a. ein þau erfiðustu við kolmunnaveiðar langt vestur af Írlandi, nánast úti á miðju Atlantshafinu að vetri til. Mikil endurnýjun hefur orðið í uppsjávarflota Íslendinga á síðustu árum og segir Kristján að nýsmíðin sé liður í þeirri þróun.

Nýr Vilhelm Þorsteinsson leysir eldra skip með sama nafni af hólmi, sem kom nýtt til landsins fyrir 20 árum. Það er frystiskip sem selt var til Rússlands fyrir tveimur árum og er nú m.a. gert út til síldveiða við Austur-Rússland. Til að brúa bilið hefur Margrét EA veitt uppsjávarafla Samherja, en Margrétin var smíðuð 1996.

Samningar um smíði nýja skipsins hjá Karstensens-skipasmíðastöðinni í Skagen í Danmörku voru fullfrágengnir 4. september 2018. Þann dag hefðu tvíburabræðurnir Baldvin og Vilhelm Þorsteinsssynir orðið 90 ára gamlir. Báðir voru þeir skipstjórar á skipum frá Akureyri í áratugi. Nafn nýja skipsins er sótt til Vilhelms föður Kristjáns útgerðarstjóra, en Baldvin er faðir Þorsteins Más, forstjóra Samherja.

Dregnir frá Póllandi

Upphaflega stóð til að skipið kæmi til landsins um mitt þetta ár, en vegna kórónuveikinnar og fleiri þátta hefur smíðin tafist. Hjá Karstensens er einnig verið að smíða nýjan Börk fyrir Síldarvinnsluna í Neskaupstað og er hann væntanlegur á vormánuðum. Um systurskip er að ræða og var hönnun skipanna í höndum Karstensens og útgerða skipanna. Skrokkarnir voru smíðaðir í skipasmíðastöð Karstensens í Gdynia í Póllandi, en síðan dregnir til Skagen þar sem lokið er við smíðina.

Nýr Vilhelm verður búinn til bæði nóta- og flotvörpuveiða. Skipið verður rúmlega 88 metrar að lengd, 16,6 metrar að breidd og dýptin 9,6 metrar. Burðargetan verður um þrjú þúsund tonn af kældum afla og ber því svipað eða heldur meira en Beitir NK, sem er burðarmesta skip uppsjávarflotans. Skipið verður vel búið í alla staði, bæði hvað varðar vinnuaðstöðu og aðbúnað áhafnar, sem og veiðar og meðferð á afla.

Alls verða 13 kælitankar í skipinu og segir Kristján lykilatriði til að tryggja sem mest gæði hráefnis að kæla aflann hratt niður. Sjór sé kældur í tönkunum, jafnvel niður fyrir frostmark, og aflanum síðan dælt í tankana. Markmiðið sé að hitastigið á fiskinum sé í kringum núllið þegar honum er dælt í land, jafnvel eftir langa siglingu af miðunum. Burðargetan skipti miklu máli þegar siglt sé 4-5 sólarhringa á kolmunnaveiðum á fjarlæg mið og eins þegar loðna sé veidd í bræðslu. Stærð skipanna skipti einnig miklu máli þegar siglt sé með fullfermi í misjöfnum veðrum. Á loðnu, síld og makríl til manneldis sé kæligetan gífurlega mikilvæg, en þá er oft miðað við minni farm.

Brúin hífð á Vilhelm í slippnum hjá Karstensens í Gdynia …
Brúin hífð á Vilhelm í slippnum hjá Karstensens í Gdynia í Póllandi. Ljósmynd/Karstensens

Hefur trú á loðnuvertíð

Kristján segist gera sér vonir um að Vilhelm Þorsteinsson fari til loðnuveiða fljótlega eftir heimkomuna. Reyndar sé ekki kominn loðnukvóti, en mælingar á loðnunni standa nú yfir. Gefinn hefur verið út upphafskvóti upp á 170 þúsund tonn, en hann verður endurmetinn að leiðangri Hafrannsóknastofnunar loknum.

„Ég hef fulla trú á því að það verði loðnuvertíð í vetur,“ segir Kristján. „Þrátt fyrir að engar veiðar hafi verið leyfðar tvo síðustu vetur hefur talsvert verið af loðnu víða við landið og jafnvel við Færeyjar síðasta vetur. Loðnan hefur breytt göngumynstri sínu og þörf er á frekari rannsóknum.“

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 24. september. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.9.24 606,32 kr/kg
Þorskur, slægður 19.9.24 383,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.9.24 279,12 kr/kg
Ýsa, slægð 19.9.24 249,00 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.9.24 253,40 kr/kg
Ufsi, slægður 19.9.24 322,53 kr/kg
Djúpkarfi 12.9.24 378,00 kr/kg
Gullkarfi 19.9.24 329,86 kr/kg
Litli karfi 16.9.24 10,34 kr/kg
Blálanga, óslægð 18.9.24 314,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.9.24 Kristján HF 100 Lína
Keila 309 kg
Þorskur 268 kg
Karfi 111 kg
Steinbítur 38 kg
Ufsi 16 kg
Ýsa 5 kg
Samtals 747 kg
19.9.24 Særif SH 25 Lína
Þorskur 1.488 kg
Keila 367 kg
Ýsa 62 kg
Steinbítur 58 kg
Karfi 25 kg
Samtals 2.000 kg
19.9.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 3.183 kg
Ýsa 1.120 kg
Keila 155 kg
Langa 50 kg
Steinbítur 37 kg
Samtals 4.545 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.9.24 606,32 kr/kg
Þorskur, slægður 19.9.24 383,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.9.24 279,12 kr/kg
Ýsa, slægð 19.9.24 249,00 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.9.24 253,40 kr/kg
Ufsi, slægður 19.9.24 322,53 kr/kg
Djúpkarfi 12.9.24 378,00 kr/kg
Gullkarfi 19.9.24 329,86 kr/kg
Litli karfi 16.9.24 10,34 kr/kg
Blálanga, óslægð 18.9.24 314,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.9.24 Kristján HF 100 Lína
Keila 309 kg
Þorskur 268 kg
Karfi 111 kg
Steinbítur 38 kg
Ufsi 16 kg
Ýsa 5 kg
Samtals 747 kg
19.9.24 Særif SH 25 Lína
Þorskur 1.488 kg
Keila 367 kg
Ýsa 62 kg
Steinbítur 58 kg
Karfi 25 kg
Samtals 2.000 kg
19.9.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 3.183 kg
Ýsa 1.120 kg
Keila 155 kg
Langa 50 kg
Steinbítur 37 kg
Samtals 4.545 kg

Skoða allar landanir »