Aukist hefur að veiðieftirlitsmenn á vegum norsku fiskistofunnar, Fiskeridirektoratet, verði fyrir áreitni, níði og óviðeigandi hegðun þegar þeir sinna starfi sínu og nær það bæði til kvenna og karla. Þá hefur eitt atvik á þessu ári, sem varðar kynferðislega áreitni af hálfu þeirra sem eru undir eftirliti, verið kært.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef norsku stofnunarinnar.
„Einn starfsmaður á móttökustöð fyrir fisk í Norður-Noregi hefur verið kærður vegna kynferðislegrar áreitni og fyrir að hafa komið í veg fyrir að eftirlitsmenn gætu sinnt skyldu sinni gagnvart fyrirtækinu,“ segir í tilkynningunni.
Atvikið átti sér stað í mars þegar tveir kvenkyns eftirlitsmenn sinntu starfi sínu og fylgdust með löndun afla. Einn starfsmaður móttökustöðvarinnar á þá meðal annars að hafa sagt konunum að þær ættu að koma sér um borð og eiga samfarir við skipverjana til að auka aflasæld þeirra.
„Fiskeridirektoratet líður ekki kynferðislega áreitni, hótanir, níð eða aðra ólöglega hegðun í garð starfsmanna okkar. Í þessu tilviki er um að ræða tvo kvenkyns eftirlitsmenn sem sinna mikilvægu samfélagslegu verkefni og þeim er mætt með óviðeigandi hegðun. Svona hegðun er óviðunandi,“ segir Frank Bakke-Jensen, forstjóri norsku fiskistofunnar.
Virðist um að ræða síbrotamann, því fram kemur í tilkynningunni að sami einstaklingur hafi áður verið kærður fyrir að móðgað eftirlitsmenn á vegum stofnunarinnar og í því máli samþykkt að greiða sekt.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.3.24 | 558,73 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.3.24 | 503,96 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.3.24 | 332,79 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.3.24 | 217,26 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.3.24 | 221,12 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.3.24 | 222,80 kr/kg |
Gullkarfi | 18.3.24 | 234,41 kr/kg |
Litli karfi | 18.3.24 | 10,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 18.3.24 | 208,37 kr/kg |
19.3.24 Málmey SK 1 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 52.598 kg |
Samtals | 52.598 kg |
19.3.24 Haförn ÞH 26 Dragnót | |
---|---|
Þorskur | 3.518 kg |
Steinbítur | 614 kg |
Ýsa | 575 kg |
Skarkoli | 497 kg |
Sandkoli | 297 kg |
Ufsi | 95 kg |
Samtals | 5.596 kg |
19.3.24 Vigur SF 80 Lína | |
---|---|
Steinbítur | 2.002 kg |
Þorskur | 523 kg |
Ýsa | 204 kg |
Langa | 19 kg |
Samtals | 2.748 kg |
19.3.24 Öðlingur SU 19 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 7.715 kg |
Ýsa | 1.700 kg |
Steinbítur | 527 kg |
Langa | 117 kg |
Keila | 37 kg |
Ufsi | 12 kg |
Samtals | 10.108 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.3.24 | 558,73 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.3.24 | 503,96 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.3.24 | 332,79 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.3.24 | 217,26 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.3.24 | 221,12 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.3.24 | 222,80 kr/kg |
Gullkarfi | 18.3.24 | 234,41 kr/kg |
Litli karfi | 18.3.24 | 10,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 18.3.24 | 208,37 kr/kg |
19.3.24 Málmey SK 1 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 52.598 kg |
Samtals | 52.598 kg |
19.3.24 Haförn ÞH 26 Dragnót | |
---|---|
Þorskur | 3.518 kg |
Steinbítur | 614 kg |
Ýsa | 575 kg |
Skarkoli | 497 kg |
Sandkoli | 297 kg |
Ufsi | 95 kg |
Samtals | 5.596 kg |
19.3.24 Vigur SF 80 Lína | |
---|---|
Steinbítur | 2.002 kg |
Þorskur | 523 kg |
Ýsa | 204 kg |
Langa | 19 kg |
Samtals | 2.748 kg |
19.3.24 Öðlingur SU 19 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 7.715 kg |
Ýsa | 1.700 kg |
Steinbítur | 527 kg |
Langa | 117 kg |
Keila | 37 kg |
Ufsi | 12 kg |
Samtals | 10.108 kg |