Skortur á samvinnu geti skapað hættu

Forvarnarveggsojöldin eiga að auka öryggi sjómanna.
Forvarnarveggsojöldin eiga að auka öryggi sjómanna. mbl.is/Árni Sæberg

Áttunda forvarnarveggspjald Samgöngustofu í þágu aukins öryggis á sjó undir merkjum „12 hnúta“ kom nýverið út. Umfjöllunarefnið að þessu sinni er sú hætta sem stafað getur af skorti á hæfni til samvinnu. „Það getur m.a. birst í einstrengingslegri afstöðu eða hegðun sem getur leitt til rangra ákvarðana og ótta fólks við að taka þátt í mikilvægri umræða t.d. á ögurstundu,“ segir í tilkynnignu frá stofnuninni.

Veggspjaldið vekur athygli á mikilvægi þess að lögð áhersla á að leitað sé álits samstarfsfólks. „Því það skiptir ekki máli hver hefur á réttu að standa heldur hvað sé rétt.“

Áttunda veggspjald 12 hnúta.
Áttunda veggspjald 12 hnúta. Mynd/Samgöngustofa

Þá var í júlí gefið út sjöunda veggspjaldið en þar var farið yfir þá hættu sem íþyngjandi kröfur geta skapað áhöfn og skipi.  „Vitanlega heyrir það til undantekninga að t.d. fjárhagsleg verðmæti séu sett ofar öryggi áhafnar en ef það finnst ein slík undantekning þá er það einni of mikið,“ segir á vef Samgöngustofu um viðfangsefnið.

„Ef svo ólíklega vill til að gerðar séu íþyngjandi kröfur sem stefnt geta áhöfn í hættu hvetjum við menn til að sýna staðfestu og setja ætíð öryggi báts og áhafnar í forgang. Skoðið sérstaklega þær fyrirbyggjandi aðgerðir sem tilgreindar eru hægra megin á spjaldinu.“

Sjöundaveggspjald 12 hnúta.
Sjöundaveggspjald 12 hnúta. Mynd/Samgöngustofa

Verkefnið „12 hnútar“ snýr að útgáfu tólf veggspjalda, eitt í hverjum mánuði þessa árs. Þau er unnin með helstu sérfræðingum í öryggismálum sjómanna, sem eru skólastjóri, kennarar og leiðbeinendur Slysavarnaskóla sjómanna.

Fjöldi fyrirtækja, stofnana og samtaka styðja við verkefnið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.9.24 606,32 kr/kg
Þorskur, slægður 19.9.24 383,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.9.24 279,12 kr/kg
Ýsa, slægð 19.9.24 249,00 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.9.24 253,40 kr/kg
Ufsi, slægður 19.9.24 322,53 kr/kg
Djúpkarfi 12.9.24 378,00 kr/kg
Gullkarfi 19.9.24 329,86 kr/kg
Litli karfi 16.9.24 10,34 kr/kg
Blálanga, óslægð 18.9.24 314,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.9.24 Kristján HF 100 Lína
Keila 309 kg
Þorskur 268 kg
Karfi 111 kg
Steinbítur 38 kg
Ufsi 16 kg
Ýsa 5 kg
Samtals 747 kg
19.9.24 Særif SH 25 Lína
Þorskur 1.488 kg
Keila 367 kg
Ýsa 62 kg
Steinbítur 58 kg
Karfi 25 kg
Samtals 2.000 kg
19.9.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 3.183 kg
Ýsa 1.120 kg
Keila 155 kg
Langa 50 kg
Steinbítur 37 kg
Samtals 4.545 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.9.24 606,32 kr/kg
Þorskur, slægður 19.9.24 383,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.9.24 279,12 kr/kg
Ýsa, slægð 19.9.24 249,00 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.9.24 253,40 kr/kg
Ufsi, slægður 19.9.24 322,53 kr/kg
Djúpkarfi 12.9.24 378,00 kr/kg
Gullkarfi 19.9.24 329,86 kr/kg
Litli karfi 16.9.24 10,34 kr/kg
Blálanga, óslægð 18.9.24 314,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.9.24 Kristján HF 100 Lína
Keila 309 kg
Þorskur 268 kg
Karfi 111 kg
Steinbítur 38 kg
Ufsi 16 kg
Ýsa 5 kg
Samtals 747 kg
19.9.24 Særif SH 25 Lína
Þorskur 1.488 kg
Keila 367 kg
Ýsa 62 kg
Steinbítur 58 kg
Karfi 25 kg
Samtals 2.000 kg
19.9.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 3.183 kg
Ýsa 1.120 kg
Keila 155 kg
Langa 50 kg
Steinbítur 37 kg
Samtals 4.545 kg

Skoða allar landanir »