Drottningin í aðgerð

Kóngafólk í fjölmiðlum | 8. febrúar 2023

Drottningin í aðgerð

Margrét Þórhildur Danadrottning mun fara í aðgerð á baki undir lok febrúar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá dönsku krúnunni en í tilkynningunni segir að drottningin hafi lengi glímt við bakverki sem hafi versnað undanfarið.

Margrét Þórhildur Danadrottning er á leið í aðgerð í febrúar.
Margrét Þórhildur Danadrottning er á leið í aðgerð í febrúar. AFP

Margrét Þórhildur Danadrottning mun fara í aðgerð á baki undir lok febrúar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá dönsku krúnunni en í tilkynningunni segir að drottningin hafi lengi glímt við bakverki sem hafi versnað undanfarið.

Margrét Þórhildur Danadrottning mun fara í aðgerð á baki undir lok febrúar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá dönsku krúnunni en í tilkynningunni segir að drottningin hafi lengi glímt við bakverki sem hafi versnað undanfarið.

Drottningin verður skorin upp á Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn þann 22. febrúar næstkomandi og mun liggja á spítalanum eftir aðgerðina.

Vegna aðgerðarinnar þarf drottningin að draga sig í stutt hlé og verður því helstu viðburðum á dagskrá hennar aflýst eða frestað. Þá munu aðrir úr konungsfjölskyldunni sinna hluta af verkefnum drottningarinnar á meðan hún jafnar sig eftir aðgerðina.

mbl.is