77 ára og áhyggjulaus á ströndinni í Mexíkó

Stjörnur á ferð og flugi | 27. apríl 2023

Sumarið er komið hjá leikkonunni Helen Mirren. Hún tók sér verðskuldað frí frá blómlegum ferli sínum í Hollywood og sást njóta lífsins á ströndinni í Los Cabos, Mexíkó. 

Leikkonan naut lífsins, einsömul á ströndinni í Los Cabos, Mexíkó.
Leikkonan naut lífsins, einsömul á ströndinni í Los Cabos, Mexíkó. AFP

Sumarið er komið hjá leikkonunni Helen Mirren. Hún tók sér verðskuldað frí frá blómlegum ferli sínum í Hollywood og sást njóta lífsins á ströndinni í Los Cabos, Mexíkó. 

Sumarið er komið hjá leikkonunni Helen Mirren. Hún tók sér verðskuldað frí frá blómlegum ferli sínum í Hollywood og sást njóta lífsins á ströndinni í Los Cabos, Mexíkó. 

Mirren, sem er 77 ára, virtist einsömul á ferð og sást sofandi á strandbekk, afslöppuð og róleg. Hún var náttúruleg og geislandi í svörtum sundbol og með sítt hár sitt tekið saman í hliðarfléttu á myndum sem birtust á vef Page Six.

Leikkonan er með mörg verkefni í vinnslu og heyrist hún næst í hlutverki sögumannsins í stórmyndinni um vinsælu dúkkuna Barbie sem verður frumsýnd í sumar.

mbl.is