Sigríður og Guðmundur njóta dönsku hönnunarsenunnar

Danmörk | 31. október 2023

Sigríður og Guðmundur njóta dönsku hönnunarsenunnar

Áhrifavaldurinn Sigríður Margrét Ágústsdóttir er stödd í Kaupmannahöfn um þessar mundir ásamt kærasta sínum, Guðmundi Ragnarssyni fatahönnuði. 

Sigríður og Guðmundur njóta dönsku hönnunarsenunnar

Danmörk | 31. október 2023

Sigríður Margrét Ágústsdóttir og Guðmundur Ragnarsson eru stödd í Kaupmannahöfn.
Sigríður Margrét Ágústsdóttir og Guðmundur Ragnarsson eru stödd í Kaupmannahöfn. Samsett mynd

Áhrifavaldurinn Sigríður Margrét Ágústsdóttir er stödd í Kaupmannahöfn um þessar mundir ásamt kærasta sínum, Guðmundi Ragnarssyni fatahönnuði. 

Áhrifavaldurinn Sigríður Margrét Ágústsdóttir er stödd í Kaupmannahöfn um þessar mundir ásamt kærasta sínum, Guðmundi Ragnarssyni fatahönnuði. 

Sigríður og Guðmundur eru bæði miklir tískuunnendur og því ansi ólíklegt að þeim hafi leiðst í borginni enda er Kaupmannahöfn þekkt fyrir að bjóða upp á allt það besta úr skandinavísku hönnunarsenunni. 

Sigríður nýtti ferðina vel og kíkti í danska tískuhúsið Ganni þar sem hún nældi sér í flotta skó sem prýða óskalista margra tískuunnenda þessa dagana. 

Haustið er ljúft í Köben

Af myndum að dæma hafa Sigríður og Guðmundur átt góðar stundir í Kaupmannahöfn og notið þess að skoða sig um í mildu haustveðrinu.

Þau hafa verið dugleg að deila myndum frá ferð sinni á samfélagsmiðlum, en þau hafa heimsótt ýmis hönnunarmerki og borðað góðan mat og dýrindis bakkelsi í góðum félagsskap.





mbl.is