Tugir létust í loftárásum í Austur-Ghouta í Sýrlandi í dag. Talið er að hátt í 1.350 almennir borgarar hafi látist á svæðinu frá því að hernaðaraðgerðir sýrlenska stjórnarhersins og hersveita hans hófust í febrúar.
Samkvæmt Sýrlensku mannréttindavaktinni eru árásirnar á ábyrgð rússneskra herflugvéla. Varnarmálaráðuneytið í Moskvu sendi frá sér yfirlýsingu í kvöld þar sem kemur fram að rússneski flugherinn komi ekki að hernaðaraðgerðum í Austur-Ghouta.
Í gær voru sjö ár liðin frá því stríðið í Sýrlandi hófst. Á þeim tíma hafa meira en 350 þúsund manns fallið og helmingur hinnar 20 milljóna þjóðar lagt á flótta.
Flóttaleið frá helstu átakasvæðum opnaðist í gær þegar hersveitir náðu bænum Hammuriyeh á sitt vald. Bærinn er talinn lykillinn að kjarna yfirráðasvæðis uppreisnarhópanna.
Tugþúsundir hafa náð að flýja átakasvæðið frá því í gær. Konur og börn eru í meirihluta þeirra sem hafa streymt út frá svæðinu. Sendiherra Sýrlands hjá Sameinuðu þjóðunum fullyrðir að um 40.000 manns hafi tekist að flýja en samkvæmt upplýsingum frá Sameinuðu þjóðunum og Sýrlensku mannréttindavaktinni er talan nær 20.000.
„Við vorum hrædd við að flýja, okkur var sagt að við yrðum handtekin,“ segir hinn 35 ára gamli Abu Khaled, sem rak eitt sinn fataverslun í Ghouta, en er nú á flótta, líkt og milljónir samlanda sinna.