Amy Klobuchar, öldungadeildarþingmaður demókrata í Minnesota, tilkynnti í dag að hún muni sækjast eftir tilnefningu Demókrataflokksins í embætti forseta Bandaríkjanna 2020.
Klobuchar, sem er 58 ára, er lögfræðingur að mennt og fyrrverandi saksóknari. Hún ætlar að bjóða sig fram fyrir „alla þá sem vilja fá vinnu sína viðurkennda“.
Klobuchar var kjörin á þing 2007 og var fyrsta konan sem tók sæti í öldungadeildinni fyrir Minnesota og hefur hún verið endurkjörin í tvígang, með yfirburðum. Klobuchar hefur gjarnan lýst sér sem afar samvinnufúsri og að hennar helsti hæfileiki sé að vera ósammála án þess að vera óvingjarnleg.
Útlit er fyrir fjölmennasta og fjölskrúðugasta forval í manna minnum á vettvangi Demókrataflokksins en meðal þeirra sem hafa tilkynnt um framboð sitt eru Elizabeth Warren, Kamala Harris og Tulsi Gabbard.
Forkosningar Demókrataflokksins að þessu sinni verða auk þess þær fyrstu þar sem fleiri en ein kona býður sig fram.