Ísraelskir hermenn urðu þremur gíslum að bana

Ísraelskir fótgönguliðar drápu gíslana.
Ísraelskir fótgönguliðar drápu gíslana. AFP/Jack Guez

Ísraelskir hermenn drápu í dag þrjá gísla sem voru í haldi Hamas-hryðjuverkasamtakanna.

Í yfirlýsingu Ísraelshers segir að um mistök hafi verið að ræða og að hermennirnir hafi staðið í þeirri trú að gíslarnir væru „ógn“.

„Við bardaga í Shejaiya taldi ísraelski herinn fyrir mistök að þrír ísraelskir gíslar væru ógn. Fyrir vikið skutu hermennirnir í átt að þeim og voru þeir drepnir,“ segir í yfirlýsingunni.

Kemur einnig fram að herinn sjái eftir þessu dapurlega atviki.

Tveir gíslar voru nafngreindir, hétu þeir  Yotam Haim og Samer El-Talalqa. Báðir voru teknir í gíslingu þann 7. október.

Herinn hefur ekki birt nafn þriðja einstaklingsins að ósk aðstandenda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka