Látinn laus í dag grunaður um nauðgun

Maðurinn sem grunaður er um að hafa brotið gegn barni …
Maðurinn sem grunaður er um að hafa brotið gegn barni síðustu helgi er laus úr varðhaldi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Maður á fertugsaldri sem grunaður er um að hafa nauðgað stúlku á unglingsaldri síðustu helgi var látinn laus úr gæsluvarðhaldi í dag. Var maðurinn í varðhaldi í fjóra daga en rannsóknarhagsmunir gerðu ekki kröfu um að hann yrði enn í varðhaldi, að sögn lögreglu.

Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar, staðfestir í samtali við mbl.is að maðurinn hafi verið látinn laus í dag.

Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn.
Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Rannsókn gengið vel

„Ákvörðunin er tekin á grundvelli þess að ekki þótti efni til að halda honum lengur með tilliti til rannsóknarhagsmuna. Þegar svo er þá ber okkur að sleppa honum úr varðhaldi.“

Grímur segir manninn hafa setið í varðhaldi í fjóra daga og að rannsókn málsins gangi vel. Vonast sé til þess að hægt sé að klára rannsóknina fljótlega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka