ÍA og Breiðablik áttu flesta leikmenn í Pepsi-deild karla í knattspyrnu á keppnistímabilinu 2017. Þetta kemur í ljós þegar farið er yfir bakgrunn allra leikmanna sem spiluðu í deildinni á árinu.
ÍA og Breiðablik ólu upp hvort um sig 21 leikmann sem lék í deildinni á þessu ári. Skagamenn voru með nítján af þessum leikmönnum í sínum röðum en Blikar voru með fimmtán.
Tveir Skagamenn léku því með öðrum liðum, Andri Adolphsson með Val og Arnþór Ingi Kristinsson með Víkingi R., en sex Blikar voru á mála hjá öðrum félögum á árinu 2017. Þar af tveir hjá KR, Arnór Sveinn Aðalsteinsson og Finnur Orri Margeirsson, og tveir hjá KA, þeir Guðmann Þórisson og Steinþór Freyr Þorsteinsson.
Stjarnan kemur síðan í þriðja sæti en 15 af leikmönnum deildarinnar 2017 eru uppaldir í Garðabænum. Ellefu þeirra léku á heimaslóðum með Stjörnunni en fjórir með öðrum liðum.
Í Morgunblaðinu í dag má sjá hvaðan allir leikmenn Pepsi-deildar karla 2017 komu og hvert hlutfall uppalinna leikmanna var hjá hverju liði fyrir sig.
Sjá fréttaskýringu Víðis Sigurðssonar í heild í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.