Knattspyrnusamband Íslands hefur hafið birtingu myndbanda á samfélagsmiðlum sínum þar sem um er að ræða æfingar sem krakkar geta framkvæmt einir og sér eða í litlum hópum, og hvatningarmyndbönd þar sem landsliðsfólk hvetur iðkendur til að halda áfram að hreyfa sig og æfa reglulega.
Verkefnið er kallað „Áfram Ísland“ og myndböndin munu birtast daglega á instagram- og facebooksíðum KSÍ en þau verður einnig að finna á youtubesíðu sambandsins. Íslandsmeistarinn og Eyjakonan Elísa Viðarsdóttir hvatti í dag unga iðkendur til þess að huga vel að mataræðinu á meðan æfingar liggja niðri.
Elísa er uppalin hjá ÍBV í Vestmannaeyjum og lék samfellt með liðinu frá árinu 2007 til ársins 2013. Í janúar 2014 gekk hún til liðs við sænska úrvalsdeildarfélagið Kristianstad og léku hún og systir hennar Margrét Lára þar saman um tíma. Elísa sneri aftur til Íslands árið 2016 þegar hún samdi við Val en hún varð Íslandsmeistari með liðinu á síðustu leiktíð.
Við hjá Árvakri viljum vekja athygli á því sem vel er gert á þessum erfiðu tímum. Ef þú ert með góða sögu af fyrirtækjum og einstaklingum sem eru að gera gott, sendu okkur ábendingu á netfangið stondumsaman@mbl.is.