1.950 strákar á aldrinum 11-12 ára eru skráðir til leiks á N1 mótinu í 5. flokki karla sem hófst á Akureyri í dag og er um metfjölda að ræða. Liðin eru 212 talsins og alls verða spilaðir 1.060 fótboltaleikir á fjórum dögum, að sögn Ágústs Stefánssonar sem er í mótsstjórn.
Erlend fótboltafélög hafa boðið komu sína á mótið til þess að sjá hvernig það fer fram og hvernig strákarnir standa sig.
Gripið hefur verið til viðeigandi sóttvarnarráðstafana vegna kórónuveirunnar en þar má nefna að dagskrá leikja er þéttari til þess að minnka umgang á svæðinu. Spurður hvort aldrei hafi verið útlit fyrir að aflýsa þyrfti mótinu vegna veirunnar segir Ágúst:
„Þegar COVID fór af stað í mars og apríl vorum við vissulega mjög hræddir eins og knattspyrnuhreyfingin í heild sinni. Síðan þetta fór að dala þá höfum við unnið mjög mikið með yfirvöldum upp á viðbrögð svo við erum búnir að taka þetta föstum tökum.“
Ágúst segir að fyrsti dagur mótsins hafi gengið virkilega vel og veðrið leikið við keppendur, áhorfendur og aðra.
Leikirnir eru sýndir beint á Youtube-rás KA TV.