Hinn 17 ára gamli Skagamaður Hákon Arnór Haraldsson skoraði eitt marka FC Kaupmannahafnar í 3:1-sigri á Nordsjælland í bikarúrslitum U19 ára liða í knattspyrnu í Danmörku.
Hákon hefur leikið 15 leiki með U17 ára landsliði Íslands og skorað í þeim eitt mark. Þá gerði hann þrjú mörk í sex leikjum með U16 ára liðinu.
Hákon kom til FC Kaupmannahafnar frá ÍA fyrir rúmu ári og var í lokahóp U17 ára landsliðsins á EM á síðasta ári. Er hann yngri bróðir Tryggva Hrafns Haraldssonar leikmanns ÍA.
Hefur Hákon verið áberandi hjá danska stórliðinu því hann gerði þrennu í æfingaleik á dögunum.