Belgía vann öruggan 3:0-sigur á Rússlandi í 1. umferð EM karla í fótbolta í kvöld. Leikið var í Sankti Pétursborg í Rússlandi.
Romelu Lukaku kom Belgíu yfir á 10. mínútu eftir slæm mistök í vörn Rússa og Thomas Meunier bætti við öðru marki á 34. mínútu eftir klaufagang hjá Anton Shunin í marki Rússa.
Belgar voru ekki hættir því Lukaku bætti við sínu öðru marki í blálokin er hann slapp einn í gegn eftir sendingu frá Meunier og þar við sat.
Belgía og Finnland eru með þrjú stig hvort í B-riðlinum en Danmörk og Rússland eru án stiga.