Lyfjamisferli rússneskra íþróttamanna ætlar engan endi að taka og hafa fregnir nú borist af því að rússneskur keppandi, sem tók þátt í bobbsleðakeppni Vetrarólympíuleikanna í Pyeongchang í Suður-Kóreu, hafi fallið á lyfjaprófi.
Rússneska bobbsleðasambandið greindi frá því í morgun að Nadezhda Sergeyeva hafi fallið á lyfjaprófi en í sýni sem tekið var af henni hafi fundist leifar af hjartalyfi sem er á bannlista.
Sergeyeva er annar Rússinn sem fellur á lyfjaprófi í Pyeongchang en Alexander Krushelnitsky sem keppti í krullu féll á lyfjaprófi og var sviptur bronsverðlaununum sem hann vann í tvenndarleik.