Aganefnd HSÍ tók fyrir í gær mál Bjarna Fritzsonar, þjálfara karlaliðs ÍR í handknattleik, en framkvæmdastjóri HSÍ vísaði ummælum Bjarna sem hann viðhafði eftir leik ÍBV og ÍR í átta liða úrslitum úrvalsdeildar karla í handknattleik til aganefndar HSÍ.
Niðurstaða aganefndar er að sum ummæla hans hafi verið ámælisverð og er Bjarni áminntur í samræmi við 20. gr. reglugerðar HSÍ um agamál.