Brotnuðum niður

Garðar Benedikt Sigurjónsson.
Garðar Benedikt Sigurjónsson. Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason

„Við brotnuðum í byrjun seinni hálfleik og áttum í erfiðleikjum með að koma til baka eftir það,“ sagði línumaðurinn Garðar Benedikt Sigurjónsson í liði Stjörnunnar við mbl.is eftir tap gegn Haukum í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppni Olís-deildar karla í handknattleik í Schenker-höllinni á Ásvöllum.

„Það var ágætur taktur hjá okkur í fyrri hálfleiknum og við vorum með svör við öllu því sem Haukarnir gerðu en við brotnuðum niður við mótlæti í byrjun seinni hálfleiks. Nú þurfum við bara að fara vel yfir þennan leik og laga það sem þarf að laga.

Við gerum okkur grein fyrir því að við þurfum að spila okkar besta leik til að vinna Haukana. Ef okkur tekst að ná næstum fullkomnum leik á mánudaginn þá getum við lagt Haukana að velli,“ sagði Garðar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert