Holland varð fyrsta liðið til að tryggja sæti sitt í 8-liða úrslitum heimsmeistaramóts karla í fótbolta í Katar í dag eftir góðan 3:1 sigur á Bandaríkjunum í fyrstu viðureign 16-liða úrslitanna. Holland mætir annað hvort Angentínu eða Ástralíu sem mætast klukkan 19 í Al Rayyan.
Fyrsta mark leiksins leit dagsins ljós á 10. mínútu þegar Memphis Depay kláraði frábæra sókn Hollendinga neðst í fjærhornið. Á fyrstu mínútu viðbótartíma fyrri hálfleiks kom Daley Blind aðvífandi og stýrði boltanum neðst í bláhornið eftir stoðsendingu Denzel Dumfries. Haji Wright minnkaði muninn á 76. mínútu fyrir Bandaríkin þegar hann hitti boltann illa eftir fyrirgjöf Pulisic en boltinn sveif hátt í loft upp yfir öftustu varnarmenn Hollands sem og Noppert í markinu. Á 81. mínútu kórónaði Denzel Dumfries frábæran leik sinn þegar hann kláraði góða fyrirgjöf Daley Blind frá vinstri á lofti.
Holland vann A-riðil keppninnar en Bandaríkin enduðu í öðru sæti B-riðils. Sigurliðið í þessum leik mætir Argentínu eða Ástralíu í átta liða úrslitum 9. desember.
Strax á þriðju mínútu hrökk boltinn inn fyrir vörn Hollands á Christian Pulisic sem stóð einn gegn Andries Noppert í marki Hollands en sá hollenski sá við Bandaríkjamanninum, varði glæsilega með fætinum.
Bandaríkjamenn voru sprækari á upphafsmínútunum en Hollendingar ógnuðu þó með hraða sínum.
Hröð og glæsileg sókn Hollendinga bar árangur á 10. mínútu. Depay lagði boltann inn á Gakpo í miðjuhringnum. Gakpo lagði boltann út til hægri á Dumfries sem átti fasta fyrirgjöf með grasinu út að vítateigslínunni þar sem Memphis Depay kláraði vel neðst í fjærhornið, 1:0 Hollandi í vil.
Daley Blind átti marktilraun á 18. mínútu en skot hans var víðsfjarri marki Bandaríkjanna, sveif hátt yfir. Illa farið með ágætis færi.
Á 21. mínútu tók Virgil van Dijk aukaspyrnu úr öftustu línu. Hann spyrnti boltanum beint fram á fremsta mann, markaskorarann Memphis Depay, sem kaus að skjóta í fyrsta utarlega úr teignum hægra megin en skot hans fór framhjá fjærstönginni.
Bandaríkin byrjaði sterkt en eftir að Holland skoraði fyrsa mark leiksins hafði það fulla stjórn á leiknum.
Á hinni svo kölluðu markamínútu barst boltinn til Timothy Weah hægra megin rétt utan vítateigs Hollands. Weah tók boltann á lofti og smellhitti hann en Andries Noppert var vel á verði í marki Hollands.
Einni mínútu var bætt við venjulegan leiktíma í fyrri hálfleik og það var einmitt á þeirri mínútu sem Denzel Dumfries átti aðra frábæra sendingu út í vítateiginn þar sem gamla brýnið Daley Blind kom aðvífandi og stýrði boltanum neðst í sama horn og Dephay gerði í fyrra marki Hollands, 2:0 Hollandi í vil.
Sampaio dómari flautaði til loka fyrri hálfleiks áður en Bandaríkjamenn gátu tekið miðjuna. Hollendingar leyfðu Bandaríkjamönnum að halda í boltann en sóttu sjálfir hratt og af fádæma skilvirkni, 2:0 í leikhléi.
Á 49. mínútu tók Christian Pulisic hornspyrnu frá vinstri. Boltinn barst til Tim Ream inná teignum en Cody Gakpo varði laust skot Ream á línu.
Einni mínútu síðar átti Dumfries fasta fyrirgjöf inn á markteiginn en Walker Zimmerman, miðvörður Bandaríkjanna náði að slæma fætinum í boltann sem Turner handsamaði svo í markinu.
Á 53. mínútu átti Pulisic skot utan teigs sem var frekar auðvelt fyrir Noppert í marki Hollands og á sömu mínútu átti Weston McKennie skot yfir markið frá vítateigslínunni. Bandaríkjamenn voru ekki á því að gefast upp.
Á 61. mínútu lauk Memphis Depay sókn Hollands með skoti utan teigs sem Matt Turner varði yfir markið.
Virgil van Dijk reis hæst í teignum á 71. mínútu eftir hornspyrnu en skalli hans fór yfir mark Bandaríkjanna. Á sömu mínútu átti Matt Turner frábæra tvöfalda markvörslu. Fyrst varði hann skot Koopmeiners og svo góðan skalla Depay úr frákastinu.
Á 75. mínútu átti Depay vonda sendingu til baka og Haji Wright komst fram hjá Noppert en Dumfries bjargaði skoti hans úr þröngri stöðu á línu.
Haji Wright virtist hitta boltann illa á 76. mínútu eftir fyrirgjöf Pulisic en boltinn sveif hátt í loft upp og yfir öftustu varnarmenn Hollands sem og Noppert í markinu og í bláhornið, 2:1.
Á 81. mínútu kórónaði Denzel Dumfries frábæran leik sinn þegar hann kláraði góða fyrirgjöf Daley Blind frá vinstri á lofti. Matt Turner kom engum vörnum við, 3:1.
Walker Zimmerman reyndi bakfallsspyrnu úr teignum á 86. mínútu en hún fór talsvert framhjá hollenska markinu.
Lið Hollands:
Mark: Andries Noppert
Vörn: Jurrien Timber, Virgil van Dijk, Nathan Aké (Matthijs de Light 90+3)
Miðja: Denzel Dumfries, Marten de Roon (Steven Bergwijn 46.), Davy Klaassen (Teun Koopmeiners 46.), Frenkie de Jong, Daley Blind
Sókn: Cody Gakpo (Wout Weghorst 90+3), Memphis Depay (Xavi Simons 82.)
Lið Bandaríkjanna:
Mark: Matt Turner
Vörn: Sergino Dest, Walker Zimmerman, Tim Ream, Antonee Robinson (Jordan Morris 90+2)
Miðja: Weston McKennie (Haji Wright 67.), Tyler Adams, Yunus Musah
Sókn: Timothy Weah (Brenden Aaronsson 67.), Jesus Ferreira (Giovanni Reyna 46.), Christian Pulisic