Vísindamenn kynna aðferðir og tækni á Geirsnefi

Fjöldi vísindamanna frá Evrópu munu næstu vikur vegna tilraunaleiðangurs hé …
Fjöldi vísindamanna frá Evrópu munu næstu vikur vegna tilraunaleiðangurs hé rá landi. Ljósmynd/European Molecular Biology Laboratory

Vísindamenn bjóða almenningi að koma með sér í fræðsluferð um líffræðilegan fjölbreytileika og rannsóknir á lífríki í fjörum landsins á Geirsnefi á morgun. Kynntar verða meðal annars nýjustu aðferðir og tækni við sýnatökur.

Þá munu vísindamenn Háskóla Íslands og European Molecular Biology Laboratory (EMBL), samevrópskrar stofnunar á sviði sameindalíffræði, “kynna þau samstarfsverkefni sem nú er að hefjast og mun varpa nýju ljósi á líffræðilegan fjölbreytileika á strandsvæðum, samspil smæstu og stærstu lífvera og áhrifum þeirra á umhverfið og viðbrögðum lífveranna við umhverfisbreytingum, bæði náttúrulegum og af mannavöldum,” að því er segir í tilkynningu á vef Háskóla Íslands.

Í upphafi göngunnar mun vera sagt frá Traversing European Coastlines (TREC) verkefninu og þýðingu þess. “Í framhaldinu verður farið á sýnatökustað við Geirsnef þar sem vísindamennirnir sýna hvernig sýnataka fer fram, hverju er safnað og hvers vegna. Þar gefst jafnframt tækifæri til að skoða þann búnað og tækni sem notaður er til sýnatöku í fjörum og hafi og til að meta ástand umhverfisins.”

Tilgangur TREC-verkefnisins er að varpa ljósi á stöðu einstakra vistkerfa og heilbrigði plánetunnar og skilja betur samskipti örvera, þörunga, plantna og dýra í sínu náttúrlegu umhverfi og hvernig þau bregðast við breytingum í umhverfi sínu.

Fjöldi erlendra vísindamanna

Næstu vikur verða staddir vísindamenn frá EMBL og öðrum evrópskum stofnunum vegna tilraunaleiðangurs sem tengist fyrrnefndu TREC-verkefni. Leiðangurinn er sagður undanfari stærri leiðangurs sem farinn verður með fram ströndum Evrópu á árin 2023 og 2024.

“Í tilraunaleiðangrinum verður sjónum m.a. beint að lífríkinu við strendur Íslands og sýnum safnað og aðferðir, sem beita á í rannsóknarverkefninu, prófaðar, allt í þeim tilgangi að geta svarað nýjum vísindalegum spurningum sem ekki hafa enn kviknað,” segir í tilkynningunni.

Leiðangurinn á Íslandi er farinn í samstarfi við fleiri hérlendar stofnanir, svo sem Hafrannsóknastofnun, og háskóla sem stundað hafa vistkerfisrannsóknir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 20.9.24 504,19 kr/kg
Þorskur, slægður 20.9.24 465,37 kr/kg
Ýsa, óslægð 20.9.24 247,95 kr/kg
Ýsa, slægð 20.9.24 193,95 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.9.24 255,01 kr/kg
Ufsi, slægður 20.9.24 267,83 kr/kg
Djúpkarfi 20.9.24 301,00 kr/kg
Gullkarfi 20.9.24 403,59 kr/kg
Litli karfi 16.9.24 10,34 kr/kg
Blálanga, óslægð 18.9.24 314,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.9.24 Emilý SU 157 Handfæri
Ufsi 208 kg
Þorskur 82 kg
Samtals 290 kg
20.9.24 Fjóla SH 7 Plógur
Ígulker Bf B 1.206 kg
Samtals 1.206 kg
20.9.24 Sæþór EA 101 Þorskfisknet
Þorskur 1.318 kg
Ýsa 384 kg
Ufsi 113 kg
Skarkoli 10 kg
Steinbítur 3 kg
Karfi 1 kg
Samtals 1.829 kg
20.9.24 Gunnþór ÞH 75 Þorskfisknet
Þorskur 803 kg
Ufsi 81 kg
Karfi 21 kg
Hlýri 4 kg
Samtals 909 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 20.9.24 504,19 kr/kg
Þorskur, slægður 20.9.24 465,37 kr/kg
Ýsa, óslægð 20.9.24 247,95 kr/kg
Ýsa, slægð 20.9.24 193,95 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.9.24 255,01 kr/kg
Ufsi, slægður 20.9.24 267,83 kr/kg
Djúpkarfi 20.9.24 301,00 kr/kg
Gullkarfi 20.9.24 403,59 kr/kg
Litli karfi 16.9.24 10,34 kr/kg
Blálanga, óslægð 18.9.24 314,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.9.24 Emilý SU 157 Handfæri
Ufsi 208 kg
Þorskur 82 kg
Samtals 290 kg
20.9.24 Fjóla SH 7 Plógur
Ígulker Bf B 1.206 kg
Samtals 1.206 kg
20.9.24 Sæþór EA 101 Þorskfisknet
Þorskur 1.318 kg
Ýsa 384 kg
Ufsi 113 kg
Skarkoli 10 kg
Steinbítur 3 kg
Karfi 1 kg
Samtals 1.829 kg
20.9.24 Gunnþór ÞH 75 Þorskfisknet
Þorskur 803 kg
Ufsi 81 kg
Karfi 21 kg
Hlýri 4 kg
Samtals 909 kg

Skoða allar landanir »