Svala viðurkennir að hafa pissað í náttúrulaug

Furðulegt á ferðalögum | 4. nóvember 2020

Svala viðurkennir að hafa pissað í náttúrulaug

Það er gott að ylja sér við minningar frá ferðalögum sumarsins á tímum ferðatakmarkana. Kærustuparið Svala Björgvinsdóttir og Kristján Einar Sigurbjörnsson gerðu akkúrat þetta í vikunni og rifjuðu upp þegar Svala yljaði þeim bókstaflega í náttúrulaug í sumar. 

Svala viðurkennir að hafa pissað í náttúrulaug

Furðulegt á ferðalögum | 4. nóvember 2020

Kristján Einar og Svala Björgvinsdóttir eru ástfangin eins og má …
Kristján Einar og Svala Björgvinsdóttir eru ástfangin eins og má gjarnan sjá á Instagram. Skjáskot/Instagram

Það er gott að ylja sér við minningar frá ferðalögum sumarsins á tímum ferðatakmarkana. Kærustuparið Svala Björgvinsdóttir og Kristján Einar Sigurbjörnsson gerðu akkúrat þetta í vikunni og rifjuðu upp þegar Svala yljaði þeim bókstaflega í náttúrulaug í sumar. 

Það er gott að ylja sér við minningar frá ferðalögum sumarsins á tímum ferðatakmarkana. Kærustuparið Svala Björgvinsdóttir og Kristján Einar Sigurbjörnsson gerðu akkúrat þetta í vikunni og rifjuðu upp þegar Svala yljaði þeim bókstaflega í náttúrulaug í sumar. 

„Sumarminningar,“ skrifaði tónlistarkonan og birti mynd af kærasta sínum kyssa sig í náttúrulaug. Ástfangna parið er duglegt að birta rómantískar myndir af sér en það virðist sem annað og meira en koss á kinn hafi átt sér stað í lauginni. 

„Var þetta ekki þegar þú lést gula frussið leka í vatnið,“ skrifaði Kristján Einar við mynd Svölu og virðist þar með hafa átt við þvag. 

„Já ástin mín ég pissaði í náttúrulaug,“ skrifaði Svala. „Ég skal viðurkenna það.“

Kristján Einar hélt áfram og sagði hitastigið í lauginni hafa farið hratt úr 38 gráðum upp í 42. Af brosköllum Svölu að dæma fannst henni sagan fyndin en ekki fylgir sögunni hvort parið sé að grínast eða ekki.

Svala og Kristján Einar rifjuðu upp góðar minningar á Instagram.
Svala og Kristján Einar rifjuðu upp góðar minningar á Instagram. Skjáskot/Instagram

Vant ferðafólk veit að það er ekkert eðlilegra en að pissa úti í náttúrunni eða í saltan sjó ef því er að skipta. Svo af hverju ekki að pissa í náttúrulaug? Svala er öruggega ekki sú fyrsta. 

View this post on Instagram

Summer memories 💗

A post shared by SVALA (@svalakali) on Nov 3, 2020 at 6:42am PST

mbl.is