Verður 2024 eitt stærsta árið?

Ferðamenn á Íslandi | 20. desember 2023

Verður 2024 eitt stærsta árið?

Tæplega 8,5 milljónir farþega munu ferðast um Keflavíkurflugvöll á næsta ári samkvæmt farþegaspá flugvallarins fyrir árið 2024. Spáin gerir ráð fyrir að tæplega 2,4 milljónir erlendra ferðamanna komi til landsins um flugvöllinn. Gangi spáin eftir verður árið 2024 það þriðja stærsta í sögu Keflavíkurflugvallar og það stærsta í komu erlendra ferðamanna til Íslands, að því er segir í tilkynningu. 

Á þessu ári má búast við að um það bil 2,1 - 2,2 milljónir erlendra ferðamanna komi til landsins sem er svipað og árið 2018, miðað við upplýsingar á vef Ferðamálastofu

Gangi spáin eftir verður þetta 9,6% aukning frá þeim 7,74 milljónum sem fara um flugvöllinn í ár. Fram kemur í tilkynningu, að aðeins tvisvar hafi farþegarnir verið fleiri, 8,8 milljónir 2017 og 9,8 milljónir 2018. Yfir sumarmánuðina munu 25 flugfélög fljúga áætlunarflug til 82 áfangastaða og 20 flugfélög til 69 áfangastaða yfir vetrarmánuðina. 

Reikna með 15% aukningu yfir vetrarmánuðina

Ef horft er til þeirra mánaða sem skilgreindir eru sem vetrarmánuðir á KEF, það er janúar, febrúar, mars, nóvember og desember, er gert ráð fyrir að farþegum fjölgi um 15,2% eða um 354 þúsund. Yfir sumarmánuðina, apríl til október, er gert ráð fyrir að farþegum fjölgi um 391 þúsund sem er 7,2% aukning á milli ára, segir í tilkynningunni. 

Þá gerir spáin ráð fyrir að hlutfall tengifarþega verði um 30% af heildar farþegafjölda á næsta ári en til samanburðar er það um 27% í ár. Það þýðir að hærra hlutfall af heildarfarþegafjölda mun nýta KEF sem tengistöð án þess að dvelja á Íslandi. Hlutfall tengifarþega fór mest árið 2018 þegar það var um 40%. 

Erlendir ferðamenn verði um 2,4 milljónir

Samhliða farþegaspánni var einnig unnin spá um fjölda erlendra ferðamanna sem hingað sækja á næsta ári. Þar er gert ráð fyrir að erlendir ferðamenn verði tæplega 2,38 milljónir. Það eru um 60 þúsund fleiri en árið 2018 þegar þeir voru 2,32 milljónir, sem er mesti fjöldi erlendra ferðamanna fram til þessa. Í ár koma um 2,21 milljónir ferðamanna til landsins og gerir spáin því ráð fyrir 7,3% aukningu á milli ára. Um 93 þúsund fleiri ferðamenn munu koma yfir vetrarmánuðina á næsta ári samkvæmt spánni, sem 13,4% aukning á milli ára. Yfir sumarmánuðina er gert ráð fyrir 68 þúsund fleiri ferðamönnum sem er 4,5% aukning, að því er Isavia greinir frá. 

mbl.is