Tæpir 14 milljarðar í hagkerfið

Ferðamenn á Íslandi | 7. janúar 2024

Tæpir 14 milljarðar í hagkerfið

Áætla má af niðurstöðum könnunar sem Rannsóknarmiðstöð ferðamála gerði fyrir Faxaflóahafnir að farþegar skemmtiferðaskipa hafi skilað tæpum 14 milljörðum króna inn í hagkerfið á höfuðborgarsvæðinu í fyrra. Er það með kaupum á hótelgistingu, veitingum, afþreyingu í landi, bílaleigubílum, menningu, minjagripum og annarri verslun.

Tæpir 14 milljarðar í hagkerfið

Ferðamenn á Íslandi | 7. janúar 2024

Árið 2023 komu 306.211 farþegar til Reykjavíkur og Akraness með …
Árið 2023 komu 306.211 farþegar til Reykjavíkur og Akraness með skemmtiferðaskipum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Áætla má af niðurstöðum könnunar sem Rannsóknarmiðstöð ferðamála gerði fyrir Faxaflóahafnir að farþegar skemmtiferðaskipa hafi skilað tæpum 14 milljörðum króna inn í hagkerfið á höfuðborgarsvæðinu í fyrra. Er það með kaupum á hótelgistingu, veitingum, afþreyingu í landi, bílaleigubílum, menningu, minjagripum og annarri verslun.

Áætla má af niðurstöðum könnunar sem Rannsóknarmiðstöð ferðamála gerði fyrir Faxaflóahafnir að farþegar skemmtiferðaskipa hafi skilað tæpum 14 milljörðum króna inn í hagkerfið á höfuðborgarsvæðinu í fyrra. Er það með kaupum á hótelgistingu, veitingum, afþreyingu í landi, bílaleigubílum, menningu, minjagripum og annarri verslun.

Árið 2023 komu 306.211 farþegar til Reykjavíkur og Akraness með skemmtiferðaskipum. Af þeim fjölda var tæplega helmingur skiptifarþegar, eða 148.615 alls. Þetta voru farþegar leiðangursskipa sem sigldu til fjölda hafna á Íslandi, sem og nágrannalanda. Þeir komu til Keflavíkurflugvallar og stigu um borð í skipin í Reykjavík. Að siglingu lokinni stigu þeir frá borði í Reykjavík og héldu til síns heima með flugi.

Hefur gistináttagjald áhrif?

Faxaflóahafnir gáfu það út í haust að toppnum hefði líklega verið náð í fyrra enda þola innviðir landsins takmarkaðan fjölda stórra skemmtiferðaskipa. Þá voru skipakomur til Faxaflóahafna árið 2024 áætlaðar 263 með 308.584 farþega og þar af 159.795 skiptifarþega.

Mögulega verða einhverjar afbókanir vegna gistináttagjaldsins á skipafélögin, sem gekk í gildi um áramótin. Gjaldið er 1.000 krónur á hvern farþega fyrir hverja nótt sem þeir dvelja í íslenskri lögsögu. Fyrsta skemmtiferðaskip sumarvertíðarinnar er væntanlegt 21. mars.

Til að hafa raunhæf gögn tiltæk fengu Faxaflóahafnir Rannsóknarmiðstöð ferðamála til að framkvæma könnun meðal farþega skemmtiferðaskipa í Reykjavík sumarið 2023. Sú könnun leiddi í ljós að meðaleyðsla farþega skemmtiferðaskipa í Reykjavík var 44.717 krónur á hvern farþega. Þar sem skiptifarþegum hefur fjölgað mjög þótti mikilvægt að kanna eyðslu þessara farþega í samanburði við almenna farþega skemmtiferðaskipa. Könnunin leiddi í ljós að meðaleyðsla skiptifarþega var 97.626 kr. og að þeir gistu að meðaltali 2,15 nætur í landi. Til samanburðar var eyðsla almennra farþega 27.912 kr. meðan skipið lá við landfestar í Reykjavík.

Af skiptifarþegum töldu 41% svarenda að þeir myndu snúa aftur til landsins og þá með flugi. Sigurður Jökull Ólafsson markaðsstjóri Faxaflóahafna segir að þessar niðurstöður endurspegli rannsóknir á meginlandi Evrópu sem hafa sýnt að skemmtisiglingar eru oft ákveðinn forsmekkur á áfangastað sem síðan er heimsóttur aftur.

Þessi niðurstaða er skiljanleg, að mati Sigurðar Jökuls, þar sem 89% svarenda voru mjög ánægð eða ánægð með heimsókn sína til Reykjavíkur.

„Þessar niðurstöður um eyðslu farþega skemmtiferðaskipa eru mjög merkilegar, þar sem þær sýna svo ekki verður um villst að sérstaklega skiptifarþegar eru verðmætir ferðamenn fyrir atvinnulífið á höfuðborgarsvæðinu. Nokkuð sem styður okkur í þeirri áherslu sem við leggjum í virðisaukningu af komum skemmtiferðaskipa með því að stuðla að farþegaskiptum í Reykjavík,“ segir Sigurður Jökull.

mbl.is