Varað við vasaþjófnaði

Ferðamenn á Íslandi | 14. mars 2024

Varað við vasaþjófnaði

Ferðamálastofa varar nú við því að vasaþjófar séu á sveimi á helstu áfangastöðum landsins og því þurfi ferðaþjónustuaðilar að láta viðskiptavini vita af þessari hættu.

Varað við vasaþjófnaði

Ferðamenn á Íslandi | 14. mars 2024

Ferðamálastofa hefur fengið ábendingar um að hópar vasaþjófa herji á …
Ferðamálastofa hefur fengið ábendingar um að hópar vasaþjófa herji á fólk við vinsælustu ferðamannastaði landsins. mbl.is/Ómar Óskarsson

Ferðamálastofa varar nú við því að vasaþjófar séu á sveimi á helstu áfangastöðum landsins og því þurfi ferðaþjónustuaðilar að láta viðskiptavini vita af þessari hættu.

Ferðamálastofa varar nú við því að vasaþjófar séu á sveimi á helstu áfangastöðum landsins og því þurfi ferðaþjónustuaðilar að láta viðskiptavini vita af þessari hættu.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Ferðamálastofu.

„Ferðamálastofa hefur fengið ábendingar um að hópar vasaþjófa séu að herja á helstu áfangastaði landsins. Fréttir hafa borist af ferðamönnum sem hafa tapað mjög háum fjármunum vegna þessa á undanförnum vikum. Viljum við því hvetja ferðaþjónustuaðila til þess að brýna fyrir sínum viðskiptavinum að varast vasaþjófa og ganga þannig frá verðmætum að ekki sé auðvelt að nálgast þau,“ segir í tilkynningunni. 

Hvernig er best að verjast vasaþjófum?

Ferðamálastofa veitir svo nokkur ráð varðandi það hvernig best sé að verjast vasaþjófum. Mikilvægt sé að standa alltaf vörð um verðmæti og vera meðvitaður um umhverfið á öllum tímum. Á það sérstaklega við ef einhver nálgast fólk og reynir að ná athygli þess.

  • Lokið og krækið (læsið) öllum töskum og veskjum til að gera það erfiðara fyrir vasaþjófa að komast í þær.
  • Staðsetjið handtöskur fyrir framan ykkur þegar að þið eruð á stað þar sem að margir koma saman.
  • Geymið peninga á öruggum stað (jafnvel innanklæða) svo að ekki sé hægt að læðast í þá. Ekki geyma allan peninginn á einum og sama staðnum.
  • Aldrei geyma verðmæti í ytri vösum fatnaðar.
  • Eigið afrit af helstu persónugögnum.
  • Tilkynnið til lögreglu eða landvarða ef þið takið eftir tilraunum til vasaþjófnaðar.
  • Tilkynnið allan stuld til lögreglu þó svo að það taki tíma frá ferðalaginu.
mbl.is