21 almennur borgari fórst

Maður á hækjum gengur eftir götu í Douma.
Maður á hækjum gengur eftir götu í Douma. AFP

21 almennur borgari fórst í loftárásum sýrlenska hersins á uppreisnarmenn í austurhluta Ghouta-héraðs.

Þar af fórust tólf í bænum Douma, sem hefur ítrekað orðið fyrir loftárásum.

Bresku mannréttinda- og eftirlitssamtökin Syrian Observatory for Human Rights greindu frá þessu.

Frá austurhluta Ghouta.
Frá austurhluta Ghouta. AFP
AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka