Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti gagnrýndi í dag Bandaríkin fyrir þögn þeirra gagnvart morðinu á sádiarabíska blaðamanninum Jamal Khasoggi.
„Ég botna ekkert í þögninni frá Bandaríkjunum,“ sagði Erdogan í sjónvarpsviðtali fyrr í dag. „Við viljum komast til botns í þessu máli vegna þess að þetta er ódæðisverk og morð,“ sagði hann.