Næstum sjö hundruð þúsund manns hafa þurft að flýja heimili sín í norðvesturhluta Sýrlands frá því í desember, að sögn Sameinuðu þjóðanna.
Alls hafa 29 almennir borgarar verið drepnir í loftárásum hersveita sýrlenskra stjórnvalda, studdum af Rússum, síðastliðinn sólarhring.
David Swanson, talsmaður mannréttindadeildar Sameinuðu þjóðanna, OCHA, segir að 689 þúsund manns hafi þurft að flýja heimili sín í héruðunum Idlib og Aleppo vegna árásanna. „Fjöldi fólks sem hefur þurft að flýja heimili sín vegna þessara átaka er yfirgengilegur,“ segir hann.
Sex börn voru á meðal níu almennra borgara sem voru drepnir snemma í morgun í árásum sem voru gerðar á þorpið Abin Semaan í Aleppo, þar sem hersveitirnar reyna að endurheimta mikilvægan þjóðveg, að sögn samtakanna Syrian Observatory for Human Rights.