Nýjum tilfellum af kórónuveirunni, COVID-19, hefur farið fækkandi þrjá daga í röð, ef marka má opinberar tölur frá kínverskum stjórnvöldum. Í dag hefur verið tilkynnt um rúmlega tvö þúsund ný smit og 142 dauðsföll.
Um miðja síðustu viku varð mikil fjölgun á dauðsföllum af völdum veirunnar þegar greint var frá 242 dauðsföllum á sólarhring og 14.480 smitum. Ástæðan fyrir mikilli fjölgun tilvika eru breyttar aðferðir við talningu á smituðum og vekur þetta upp grun um að staðan sé mun verri en áður hefur verið haldið fram opinberlega.
Jafnframt voru tveir háttsettir stjórnmálamenn sem höfðu eftirlit með upptökum kórónuveirunnar reknir. Þetta hefur einnig vakið upp spurningar um hvernig kínversk yfirvöld takist á við hættuástandið. Tilkynnt var um brottreksturinn nokkrum klukkutímum eftir að forseti Kína, Xi Jinping, greindi frá jákvæðum niðurstöðum í baráttunni við farsóttina.
Síðustu daga hefur nýjum smitum farið fækkandi, að því er segir í frétt BBC. Frá því kórónuveirufaraldurinn braust út í lok síðasta árs hafa yfir 68.000 smitast og 1.665 látið lífið. Yfir 500 hafa greinst utan Kína í um 30 löndum. Fjórir hafa látið lífið utan Kína; í Frakklandi, Hong Kong, Filippseyjum og Japan.
Mi Feng, talsmaður heilbrigðisnefndar Kína, segir að aðgerðir stjórnvalda til að sporna gegn veirunni væru að bera árangur. Tedros Adhanom Ghebreysus, yfirmaður Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO), hrósaði viðbörgðum kínverskra stjórnvalda vegna faraldursins í gær. Sagði hann heimsbyggðina ekki hafa mikinn tíma en kínversk stjórnvöld hafi brugðist rétt við til að sporna gegn útbreiðslu kórónuveirunnar.
Hvað sem því líður hafa stjórnvöld í Kína sætt gagnrýni fyrir að gera lítið úr umfangi veirunnar þegar hún kom fyrst upp í borginni Wuhan í lok síðasta árs.
Sérfræðingar við verkfræðideild John Hopkins-háskóla í Maryland í Bandaríkjunum hafa útbúið gagnvirkt kort þar sem hægt er að fylgjast með útbreiðslu kórónaveirunnar. Kortið má nálgast hér en það er uppfært reglulega.