Yfirvöld í Litháen hafa tilkynnt að hindrun verði byggð á landamærum landsins við Hvíta-Rússland til þess að koma í veg fyrir komu ólöglegs flóttafólks frá Mið-Austurlöndum.
Forsætisráðherra Litháens, Ingrid Simonyte, segir að um þúsund flóttamenn séu í haldi eftir að hafa farið yfir landamærin frá 1. júlí. Á öllu síðasta ári handtók Litháen 81 ólöglegan flóttamann á landamærunum.
Simonyte sakar Hvíta-Rússland um að fljúga nú með flóttamenn að landamærunum svo þeir geti farið yfir til Litháens en sönnunargögn um það fundust á einum flóttamannanna.
Samskipti á milli ríkjanna hafa verið sérstaklega stirð síðan blaðamaðurinn Roman Protasevich og kærasta hans, Sofia Sapega, voru handtekin í Minsk í maí eftir að farþegaþotunni sem þau voru farþegar í var gert að lenda þar á leið frá Aþenu til Vilnius.
Á blaðamannafundi í dag sagði Simonyte að eftirlit með landamærunum yrði aukið til muna með aðstoð hersins og að auka hindrun yrði byggð.
Frétt á vef BBC