Kirkjutröppurnar lokaðar fram á haust

Verkið felur í sér að núverandi kirkjutröppur verði fjarlægðar og …
Verkið felur í sér að núverandi kirkjutröppur verði fjarlægðar og allt sem þeim tilheyrir. Ljósmynd/Oksana Chychkanova

Viðamiklar framkvæmdir eru hafnar á svæðinu í kringum kirkjutröppurnar á Akureyri. Gert er ráð fyrir að framkvæmdirnar taki um fjóra mánuði og því verður svæðið lokað almenningi fram í október. 

Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar. 

Verkið felur í sér að núverandi kirkjutröppur verði fjarlægðar og allt sem þeim tilheyrir. Neðsti hluti trappanna liggur ofan á þakplötu húsnæðis sem áður hýsti almenningssalerni, til þess að vatnsþétta hana þarf að hreinsa í burtu allan jarðveg, bræða pappann á, og steypa síðan tröppurnar að nýju. 

Efsti hlutinn verður steyptur ofan á fyllingu og tröppurnar lagðar granítskífum. Jafnframt verður snjóbræðsla sett í tröppurnar og við þær kemur lýsing. 

Þar sem ekki er hægt að ganga um svæðið á meðan á framkvæmdunum stendur hefur gamall stígur, suður af tröppunum að Sigurhæðum, verið byggður upp með viðunandi hætti. 

Hér má sjá yfirlitsmynd með helstu hjáleiðum.
Hér má sjá yfirlitsmynd með helstu hjáleiðum. Mynd/Akureyrarbær
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert