Leeds versti leikurinn sem Liverpool gat fengið (myndskeið)

Gamla stórveldið Leeds er snúið aftur í ensku úrvalsdeildina í knattspyrnu eftir 16 ára fjarveru og hefur tímabilið á því að heimsækja Englandsmeistarana sjálfa, Liverpool, klukkan 16 í dag.

Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Síminn Sport og hér í klippunni að ofan má sjá hitað upp fyrir leikinn með skemmtilegum svipmyndum úr leikjum liðanna. „Leeds er versta liðið sem Liverpool gat fengið í byrjun tímabils. Þetta eru nýliðar sem verða hungraðir í að byrja vel,“ sagði Michael Owen, fyrrverandi leikmaður Liverpool, meðal annars í myndskeiðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert