Fjárfestar kaupa 5% hlut í Símanum

Sigurgeir Sigurðsson

Arion banki hefur selt hópi fjárfesta um fimm prósent hlut í Símanum, en stefnt er að skráningu Símans í kauphöll nú í haust. Hópurinn samanstendur af fjárfestum frá fimm löndum ásamt nokkrum af stjórnendum Símasamstæðunnar.

Fyrir hópnum fer Bertrand Kan, hollenskur fjárfestir með áratuga reynslu af fjárfestingarstarfsemi á sviði fjarskipta, en það var Orri Hauksson, forstjóri Símans, sem átti frumkvæði að því að hópurinn var myndaður. 

Eftir söluna á Arion banki um 33 prósent í Símanum. Nú í haust er stefnt að því að hlutabréf í Símanum verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland og í aðdraganda þess áformar bankinn að minnka eignarhlut sinn í félaginu frekar með almennu útboði.

„Það er gleðilegt að sjá áhuga fjárfesta á Símanum nú í aðdraganda skráningar félagsins í kauphöll. Okkur þykir jákvætt að sjá bæði erlenda og innlenda fjárfesta í þeim hópi sem nú kaupir hlut í Símanum og jafnframt að stjórnendur samstæðunnar séu orðnir hluthafar, en það sýnir trú þeirra á félaginu og framtíð þess,“ er haft eftir Höskuldi H. Ólafssyni, bankastjóra Arion banka, í tilkynningu.

Stórt skref fyrir stjórnendur

„Það er stórt skref fyrir okkur í stjórnendahópnum að taka þátt í eignarhaldi félagsins. Við höfum trú á fjárfestingunni til lengri tíma, teljum að hægt sé að auka verðmæti félagsins og erum sérstaklega ánægð með að fá til liðs við okkur nýja fjárfesta sem í fortíð og nútíð hafa náð að skapa ríkulega ávöxtun úr fjarskiptaverkefnum víðs vegar um heim,“ er haft eftir Orra Haukssyni, forstjóra Símans.

„Það er mjög spennandi að fá að taka þátt í að skrifa næsta kafla í sögu Símans, nú þegar skráning félagsins á hlutabréfamarkað er handan við hornið. Ég kynntist félaginu og íslenskum fjarskiptamarkaði fyrst fyrir um áratug þegar ég hafði með höndum það verkefni að leiða söluferli Símans fyrir hönd Morgan Stanley. Heimurinn hefur tekið miklum breytingum síðan þá, en ég vona að alþjóðleg reynsla mín og annarra fjárfesta í þessum hópi  geti komið fyrirtækinu að notum í framtíðinni,“ er haft eftir fjárfestinum Bertrand Kan í tilkynningu.

Nú í haust er stefnt að því að hlutabréf í …
Nú í haust er stefnt að því að hlutabréf í Símanum verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. mbl.is/Þórður
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK