Smíði hafin á nýrri Vestmannaey

Þannig munu Vestmannaey og Bergey koma til með að líta …
Þannig munu Vestmannaey og Bergey koma til með að líta út.

Smíði er hafin á nýju skipi Bergs-Hugins ehf., sem koma mun í stað Vestmannaeyjar VE og kemur til með að bera sama heiti. Þá er undirbúningur hafinn að smíði nýrrar Bergeyjar VE, en norska skipasmíðastöðin Vard hefur umsjón með smíði beggja skipanna.

200 mílur greindu frá ákvörðun Síldarvinnslunnar, móðurfélags Bergs-Hugins, um endurnýjun skipanna í desember síðastliðnum.

Skipin sem um ræðir verða 28,95 metrar að lengd og 12 metrar að breidd, og í þeim verða tvær aðalvélar með tveimur skrúfum og einnig ný kynslóð rafmagnsspila frá Seaonics. Skipin verða vel búin í alla staði og munu hafa íbúðir fyrir 13 manns og taka um 80 tonn af ísuðum fiski í lest. Þá hefur verið vandlega hugað að orkunýtingu við hönnun skipanna, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar. Vinnuaðstaða sjómanna er þar sögð sérstaklega höfð í huga við hönnun á vinnsludekki og öll áhersla lögð á góða meðhöndlun á fiski og öfluga kælingu.

Guðmundur Alfreðsson, viðhaldsstjóri Síldarvinnslunnar, er nýlega kominn frá Noregi en hann mun þar fylgjast vel með öllu er lýtur að hönnun og smíði skipanna.

„Skipin eru smíðuð í einingum og fer smíði þeirra fram í skipasmíðastöðinni Salthammer í Tesfjord. Þaðan eru einingarnar dregnar á pramma til Aukra þar sem þær verða settar saman og allri vinnu við smíðina verður lokið þar,“ er haft eftir Guðmundi á vef Síldarvinnslunnar.

Afhent næsta sumar

„Allir þættir við smíði skipanna eru boðnir út og síðan koma starfsmenn þeirra fyrirtækja sem fá verkefnin til Aukra og vinna í þeim þar. Þannig eru einstakir hlutar skipanna smíðaðir víða en öll samsetning á sér stað í Aukra auk þess sem eitt skipanna verður að öllu leyti smíðað þar. Skrokkar okkar skipa verða smíðaðir í Salthammer og settir saman í Aukra en skrokkar fjögurra skipa verða hins vegar smíðaðir í Vietnam,“ segir Guðmundur.

„Þegar smíðinni í Vietnam verður lokið verða skrokkarnir fluttir þaðan til Aukra og þar verða skipin síðan fullfrágengin. Nú liggur fyrir að afhending á nýrri Vestmannaey og Bergey dregst lítils háttar frá því sem ráð var fyrir gert. Nú er gert ráð fyrir að Vestmannaey verði afhent í maí 2019 og Bergey í júní.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.9.24 607,03 kr/kg
Þorskur, slægður 19.9.24 383,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.9.24 278,55 kr/kg
Ýsa, slægð 19.9.24 249,00 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.9.24 253,56 kr/kg
Ufsi, slægður 19.9.24 322,53 kr/kg
Djúpkarfi 12.9.24 378,00 kr/kg
Gullkarfi 19.9.24 305,68 kr/kg
Litli karfi 16.9.24 10,34 kr/kg
Blálanga, óslægð 18.9.24 314,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.9.24 Kristján HF 100 Lína
Keila 309 kg
Þorskur 268 kg
Karfi 111 kg
Steinbítur 38 kg
Ufsi 16 kg
Ýsa 5 kg
Samtals 747 kg
19.9.24 Særif SH 25 Lína
Þorskur 1.488 kg
Keila 367 kg
Ýsa 62 kg
Steinbítur 58 kg
Karfi 25 kg
Samtals 2.000 kg
19.9.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 3.183 kg
Ýsa 1.120 kg
Keila 155 kg
Langa 50 kg
Steinbítur 37 kg
Samtals 4.545 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.9.24 607,03 kr/kg
Þorskur, slægður 19.9.24 383,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.9.24 278,55 kr/kg
Ýsa, slægð 19.9.24 249,00 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.9.24 253,56 kr/kg
Ufsi, slægður 19.9.24 322,53 kr/kg
Djúpkarfi 12.9.24 378,00 kr/kg
Gullkarfi 19.9.24 305,68 kr/kg
Litli karfi 16.9.24 10,34 kr/kg
Blálanga, óslægð 18.9.24 314,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.9.24 Kristján HF 100 Lína
Keila 309 kg
Þorskur 268 kg
Karfi 111 kg
Steinbítur 38 kg
Ufsi 16 kg
Ýsa 5 kg
Samtals 747 kg
19.9.24 Særif SH 25 Lína
Þorskur 1.488 kg
Keila 367 kg
Ýsa 62 kg
Steinbítur 58 kg
Karfi 25 kg
Samtals 2.000 kg
19.9.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 3.183 kg
Ýsa 1.120 kg
Keila 155 kg
Langa 50 kg
Steinbítur 37 kg
Samtals 4.545 kg

Skoða allar landanir »