Glæsiförðun Jóhönnu Helgu á útskriftardaginn

Förðunartrix | 13. júní 2023

Glæsiförðun Jóhönnu Helgu á útskriftardaginn

Áhrifavaldurinn Jóhanna Helga Jensdóttir leyfði fylgjendum sínum á TikTok að fylgjast með förðunarrútínunni á útskriftardaginn, en hún útskrifaðist með BS-gráðu í iðjuþjálfun frá Háskólanum á Akureyri.

Glæsiförðun Jóhönnu Helgu á útskriftardaginn

Förðunartrix | 13. júní 2023

Áhrifavaldurinn Jóhanna Helga Jensdóttir útskrifaðist frá Háskólanum á Akureyri um …
Áhrifavaldurinn Jóhanna Helga Jensdóttir útskrifaðist frá Háskólanum á Akureyri um síðustu helgi. Samsett mynd

Áhrifavaldurinn Jóhanna Helga Jensdóttir leyfði fylgjendum sínum á TikTok að fylgjast með förðunarrútínunni á útskriftardaginn, en hún útskrifaðist með BS-gráðu í iðjuþjálfun frá Háskólanum á Akureyri.

Áhrifavaldurinn Jóhanna Helga Jensdóttir leyfði fylgjendum sínum á TikTok að fylgjast með förðunarrútínunni á útskriftardaginn, en hún útskrifaðist með BS-gráðu í iðjuþjálfun frá Háskólanum á Akureyri.

Í veislunni klæddist Jóhanna bleikum satínkjól frá Club L London og var með einfalt og látlaust skart við. Þegar kom að förðuninni var hún með flotta glæsiförðun og krullaði á sér hárið.

Jóhanna Helga var glæsileg á útskriftardaginn í síðum bleikum satínkjól.
Jóhanna Helga var glæsileg á útskriftardaginn í síðum bleikum satínkjól. Skjáskot/Instagram

Sólarvörnin mikilvægasta skrefið

Jóhanna byrjaði á augnförðuninni og setti á sig blautan augnblýant með væng. Því næst sneri hún sér að húðinni, en hún segir mikilvægasta skrefið vera sólarvörnina sem hún notar sem grunn undir farðann. 

Hún notaði svo ljómagrunninn Hollywood Flawless Filter frá Charlotte Tilbury. Því næst notaði hún skyggingarstifti frá Lancome, Shape Tape hyljarann frá Tarte undir augun og ljómavöru á nefið og kinnbeinin áður en hún setti farða á allt andlitið. 

Jóhanna notaði svo kremkinnalit frá Rare Beauty í litnum Happy áður en hún setti litlaust púður yfir andlitið. Hún notaði svo nóg af festiúða (e. setting spray) frá Urban Decay til að tryggja að förðunin entist allt kvöldið.

Til að leggja lokahönd á augnförðunina setti hún örlítið af augnskugga yfir augnlokið og smá glimmer í augnkrókinn frá Charlotte Tilbury áður en hún setti maskara á augnhárin og bætti við nokkrum stökum gerviaugnhárum.

mbl.is