12 hlutir sem tískuunnandinn verður að eignast

Heimili | 24. ágúst 2023

12 hlutir sem tískuunnandinn verður að eignast

Haustið er á næsta leiti og því eru flestir á fullu að koma sér aftur í rútínu fyrir skóla og vinnu. Tískan á það til að sveiflast með árstíðunum, hvort sem um ræðir fata-, snyrtivöru- eða heimilistísku, en um þetta leyti koma hlýrri flíkur, rakagefandi vörur og notalegir heimilismunir sterkir inn og undirbúa okkur undir veturinn. 

12 hlutir sem tískuunnandinn verður að eignast

Heimili | 24. ágúst 2023

Samsett mynd

Haustið er á næsta leiti og því eru flestir á fullu að koma sér aftur í rútínu fyrir skóla og vinnu. Tískan á það til að sveiflast með árstíðunum, hvort sem um ræðir fata-, snyrtivöru- eða heimilistísku, en um þetta leyti koma hlýrri flíkur, rakagefandi vörur og notalegir heimilismunir sterkir inn og undirbúa okkur undir veturinn. 

Haustið er á næsta leiti og því eru flestir á fullu að koma sér aftur í rútínu fyrir skóla og vinnu. Tískan á það til að sveiflast með árstíðunum, hvort sem um ræðir fata-, snyrtivöru- eða heimilistísku, en um þetta leyti koma hlýrri flíkur, rakagefandi vörur og notalegir heimilismunir sterkir inn og undirbúa okkur undir veturinn. 

Smartland tók saman lista yfir 12 vörur sem tróna efst á óskalista tískuunnandans um þessar mundir.

Skórnir sem allir verða að eignast

Salomon-skórnir eru efst á óskalista tískuunnenda víðsvegar um heim og ekki að ástæðulausu. Skórnir eru ekki bara töff í útliti heldur líka þægilegir, en þeir eru hannaðir sem gönguskór og fara því vel með fæturna.

Salomon-skórnir fást í Húrra og kosta 34.990 kr.
Salomon-skórnir fást í Húrra og kosta 34.990 kr. Ljósmynd/hurrareykjavik.is

„Oversized“ fyrir allan peninginn

Nú eiga „oversized“ buxur hug og hjörtu tískuunnenda, en í lok sumars hafa víðar buxur úr nælon-efni tekið yfir og þykja það allra heitasta. Það má því búast við að haustið muni einkennast af kósí-fíling og þægindum sem við tökum að sjálfsögðu fagnandi. 

Buxurnar eru frá Saks Potts og fást í Andrá. Þær …
Buxurnar eru frá Saks Potts og fást í Andrá. Þær kosta 36.900 kr. Ljósmynd/Andrareykjavik.com

Glossinn sem þú kaupir aftur og aftur

Það kannast flestir við hinn vinsæla varagloss frá Clarins, en hann er nú kominn í nýjar og endurbættar umbúðir og er að mati margra ómissandi í öll veski. Ef þú vilt fá mátulegan og náttúrulegan ljóma á varirnar með lítilli fyrirhöfn, þá er Clarins-glossinn málið. 

Ljósmynd/Dutyfree.is

Ekki flækja hlutina

Það þarf ekkert alltaf að flækja hlutina og þessi sundbolur frá Opéra Sport er sönnun þess. Sundbolurinn er einfaldur og stílhreinn, en samt er eitthvað við hann sem grípur augað samstundis.

Sundbolurinn er frá Opéra Sport og fæst í Húrra Reykjavík. …
Sundbolurinn er frá Opéra Sport og fæst í Húrra Reykjavík. Hann kostar 19.990 kr. Ljósmynd/Hurrareykjavik.is

Masteraðu 90's greiðsluna

Hárgreiðsla er mikilvægur partur af heildarlúkkinu og getur án efa skipt sköpum. Það hafa líklega allir orðið varir við 90's greiðsluna sem hefur tröllriðið samfélagsmiðlum síðastliðið ár, en greiðslan er klassísk og virðast vinsældir hennar ekkert vera að dvína. 

Hitaburstinn er frá HH Simonsen og fæst í Beautybar. Hann …
Hitaburstinn er frá HH Simonsen og fæst í Beautybar. Hann kostar 26.342 kr. Ljósmynd/Beautybar.is

Hinn fullkomni jakki fyrir haustið

Haustið er sjarmerandi tími þar sem veðrið fer aðeins að kólna en sólin lætur þó enn sjá sig. Þá er nauðsynlegt að eiga léttan jakka sem passar við allt, og hér er hann.

Jakkinn fæst í Fou22 og kostar 34.900 kr.
Jakkinn fæst í Fou22 og kostar 34.900 kr. Ljósmynd/Fou22.is

Hver vill ekki vera með allt á hreinu?

Nú þegar flestir hafa lokið sumarfríi sínu tekur rútínan og hversdagsleikinn við. Það getur verið krefjandi að koma sér aftur í gírinn en þá getur gott skipulag auðveldað lífið töluvert. 

Skipulagsbókin er frá Reykjavík Letterpress og fæst í Mikado. Hún …
Skipulagsbókin er frá Reykjavík Letterpress og fæst í Mikado. Hún kostar 3.900 kr. Ljósmynd/Mikado.store

Alvöru töffarasólgleraugu

Í sumar hafa sólgleraugu í anda ársins 2000 verið allsráðandi og hreinlega tekið yfir tískuheiminn. Það tók svolítinn tíma fyrir suma að venjast sólgleraugnastílnum, en eftir sumarið getum við líklega flest sammælst um að þau séu, jú, hrikalega töff.

Sólgleraugun eru frá Corlin og fást í SisBis. Þau kosta …
Sólgleraugun eru frá Corlin og fást í SisBis. Þau kosta 15.990 kr. Ljósmynd/Sisbis.is

Næring fyrir húðina

Nú þegar veðrið fer að kólna er nauðsynlegt að huga vel að húðinni, en það má ekki gleyma að huga að líkamanum rétt eins og andlitinu. Þá er þetta létta og nærandi líkamsserum frá Chanel tilvalið, en það kemur í spreyformi og er því þægilegt í notkun.

Ljósmynd/Chanel.com

Létt og passar við allt

Það þurfa allir að eiga eina létta og þægilega tösku sem passar við allt. Þessa er auðvelt að grípa í við hvaða tækifæri sem er, en hún passar bæði við hversdagsleg og fín föt. Þar að auki er hún stílhrein og mátulega stór.

Taskan er frá BAGGU og fæst í Mjöll. Hún kostar …
Taskan er frá BAGGU og fæst í Mjöll. Hún kostar 8.800 kr. Ljósmynd/Mjoll.is

Lúxushandþvottur 

Það eru litlu hlutirnir í hversdagsleikanum sem gefa lífinu lit, en við eigum það mörg til að gleyma því í amstri dagsins. Við getum gert eitthvað lítið, eins og að þvo sér um hendurnar, að skemmtilegu mómenti með vandaðri og fallegri handsápu. 

Handsápa frá Frama fæst í Epal og kostar 6.900 kr.
Handsápa frá Frama fæst í Epal og kostar 6.900 kr. Ljósmynd/Epal.is

Hárböndin með sterka endurkomu

Að undanförnu hafa hárbönd orðið sífellt meira áberandi í takt við tískustrauma frá aldamótunum. Þessi fallegu hárbönd eru hekluð af Heklu Nínu og gefa hvaða lúkki sem er skemmtilegan karakter.

Hárbandið er handgert og fæst inn á heklanina.is. Það kostar …
Hárbandið er handgert og fæst inn á heklanina.is. Það kostar 5.500 kr. Ljósmynd/Heklanina.is
mbl.is