10 hlutir sem koma þér í gegnum skammdegið

Heimili | 11. janúar 2024

10 hlutir sem koma þér í gegnum skammdegið

Þá er önnur vika ársins gengin í garð, en margir eru eflaust sammála því að henni sé einna best lýst sem ansi brattri brekku með hálkublettum. Það hefst oft hálfgert reipitog innra með okkur á þessum árstíma þar sem við erum á annan bóginn nýbúin að setja okkur háleit markmið og ætlum að sigra nýja árið, en á hinn bóginn dregur skammdegið og veðrið úr okkur alla orku.

10 hlutir sem koma þér í gegnum skammdegið

Heimili | 11. janúar 2024

Óskalisti vikunnar er extra flottur!
Óskalisti vikunnar er extra flottur! Samsett mynd

Þá er önnur vika ársins gengin í garð, en margir eru eflaust sammála því að henni sé einna best lýst sem ansi brattri brekku með hálkublettum. Það hefst oft hálfgert reipitog innra með okkur á þessum árstíma þar sem við erum á annan bóginn nýbúin að setja okkur háleit markmið og ætlum að sigra nýja árið, en á hinn bóginn dregur skammdegið og veðrið úr okkur alla orku.

Þá er önnur vika ársins gengin í garð, en margir eru eflaust sammála því að henni sé einna best lýst sem ansi brattri brekku með hálkublettum. Það hefst oft hálfgert reipitog innra með okkur á þessum árstíma þar sem við erum á annan bóginn nýbúin að setja okkur háleit markmið og ætlum að sigra nýja árið, en á hinn bóginn dregur skammdegið og veðrið úr okkur alla orku.

Það þýðir samt ekkert að gefast upp, en ef það er einhvern tímann rétti tíminn til að dekra við sig þá er það einmitt í janúar. Óskalisti vikunnar inniheldur því tíu vörur sem hjálpa þér að komast í gegnum skammdegið!

Hönnun fyrir erfiðar aðstæður!

Jakkinn Hornstrandir er sérstaklega hannaður fyrir erfiðar aðstæður, en það mætti alveg færa rök fyrir því að það séu erfiðar aðstæður að fara í gegnum janúarmánuðinn hér á klakanum. Það er því ómissandi að eiga góðan jakka sem er vatnsheldur og þægilegur, en svo mun hann vera fullkominn í fjallgöngurnar þegar fer að vora!

Útivistarjakki fæst hjá 66° Norður og kostar 98.000 kr.
Útivistarjakki fæst hjá 66° Norður og kostar 98.000 kr. Ljósmynd/66north.com

Hvatning í ræktina!

Margir ætla að bæta heilsuna á nýju ári og hafa sett sér markmið að hreyfa sig meira. Það getur verið erfitt að fara fram úr rúminu á morgnana í svartamyrkri og koma sér út úr húsi og á æfingu, eða upp úr sófanum eftir vinnu þegar rigningin lemur á gluggana – þá er tilvalið að fá sér ný æfingaföt og nýta þau sem hvatningu í ræktina!

Æfingajakki fæst hjá Metta Sport og kostar 11.990 kr.
Æfingajakki fæst hjá Metta Sport og kostar 11.990 kr. Ljósmynd/Mettasport.is

Kósíheit!

Það er oftast hægt að finna jákvæðar hliðar á krefjandi aðstæðum, en það góða við skammdegið og veðrið í janúar er hvað það er auðvelt að gera heimilið kósí með fallegum kertum. Njótum þess!

Ilmkerti frá Hvammsvík fæst í Mikado og kostar 8.890 kr.
Ilmkerti frá Hvammsvík fæst í Mikado og kostar 8.890 kr. Ljósmynd/Mikado.is

Þessi sem kemur þér út!

Á Íslandi er nauðsynlegt að eiga góða og hlýja úlpu sem kemur manni út úr húsi á morgnanna. Þessi flotta úlpa frá H2OFagerholt er stílhrein með flottu sniði, en það besta er þó hversu hlý hún er en á sama tíma létt. 

Úlpa frá H2OFagerholt fæst hjá Fou22 og kostar 76.000 kr.
Úlpa frá H2OFagerholt fæst hjá Fou22 og kostar 76.000 kr. Ljósmynd/Fou22.is

Langar þig að lesa meira í ár?

Það er algengt áramótaheiti hjá fólki að lesa meira, en það er tilvalið að byrja árið með stæl á bókinni Duft eftir Bergþóru Snæbjörnsdóttur. 

Duft eftir Bergþóru Snæbjörnsdóttur fæst í Eymundsson og kostar 7.999 …
Duft eftir Bergþóru Snæbjörnsdóttur fæst í Eymundsson og kostar 7.999 kr. Ljósmynd/Penninn.is

Burtu með baugana!

Það er ekki bara hálka, rok og dimma sem fylgir janúarmánuðinum, heldur oft líka lúmskir baugar undir augunum. Þá kemur Anti-Pigment Illuminating Eye Care augnkremið frá Eucerin sér vel, en kremið leiðréttir og dregur úr dökkum baugum, þrota og sléttir fínar línur.

Anti-Pigment Illuminating Eye Care augnkremið frá Eucerin fæst í Lyf …
Anti-Pigment Illuminating Eye Care augnkremið frá Eucerin fæst í Lyf og heilsu og kostar 4.798 kr. Ljósmynd/Lyfogheilsa.is

Draumagallinn!

Þessi tryllti skíðagalli frá Goldbergh er á óskalista margra fagurkera, enda fáránlega flottur. Við verðum að minna okkur á allt það góða sem fylgir vetrinum, til dæmis þegar skíðabrekkurnar opna! Margir bíða spenntir eftir meiri snjó og fleiri skíðaferðum, en í millitíðinni er upplagt að splæsa í alvöru skíðagalla.

Skíðagalli frá Goldbergh fæst hjá Hrafnhildi og kostar 142.980 kr.
Skíðagalli frá Goldbergh fæst hjá Hrafnhildi og kostar 142.980 kr. Ljósmynd/Hjahrafnhildi.is

Eitthvað nýtt og töff!

Ný flík getur gert mikið fyrir mann í skammdeginu, en þessar buxur eru fáránlega töff og munu nýtast vel bæði í vetur og næsta sumar!

Buxur fást í Nebraska og kosta 47.990 kr.
Buxur fást í Nebraska og kosta 47.990 kr. Ljósmynd/Nebraska.is

Förum í sund!

Við höldum áfram að líta á björtu hliðarnar – sund er eitt af því sem er virkilega notalegt sama hvernig viðrar, og sumir vilja meira að segja meina að það sé best að fara í sund í rigningu og roki. Það er algjör snilld að byrja árið með þessu skemmtilega skafkorti, en í árslok verður þú vonandi búin að skafa heilmikið af því!

Skafkortið fæst hjá Skaf og kostar 5.990 kr.
Skafkortið fæst hjá Skaf og kostar 5.990 kr. Ljósmynd/Skraf.is

Út fyrir þægindarammann!

Það er alltaf gott að kíkja út fyrir þægindaramann, líka þegar kemur að tísku. Þessi stígvél hafa verið að gera allt vitlaust, en fólk virðist annað hvort elska þau eða vera allt annað en hrifið.

Stígvél frá Paloma Wool fást í Andrá og kosta 62.900 …
Stígvél frá Paloma Wool fást í Andrá og kosta 62.900 kr. Ljósmynd/Andrareykjavik.com
mbl.is