34% færri nauðganir tilkynntar

Kynferðisbrot | 20. nóvember 2023

34% færri nauðganir tilkynntar

Lögreglan skráði tilkynningar um 126 nauðganir fyrstu níu mánuði þessa árs en til samanburðar var tilkynnt um 191 nauðgun á sama tímabili í fyrra. Þetta samsvarar 34% fækkun tilkynninga.

34% færri nauðganir tilkynntar

Kynferðisbrot | 20. nóvember 2023

Ekki hafa jafnfáar nauðganir verið tilkynntar til lögreglu á tímabilinu …
Ekki hafa jafnfáar nauðganir verið tilkynntar til lögreglu á tímabilinu 2010 til 2023 sem skýrslan nær yfir. Ljósmynd/Colourbox

Lögreglan skráði tilkynningar um 126 nauðganir fyrstu níu mánuði þessa árs en til samanburðar var tilkynnt um 191 nauðgun á sama tímabili í fyrra. Þetta samsvarar 34% fækkun tilkynninga.

Lögreglan skráði tilkynningar um 126 nauðganir fyrstu níu mánuði þessa árs en til samanburðar var tilkynnt um 191 nauðgun á sama tímabili í fyrra. Þetta samsvarar 34% fækkun tilkynninga.

Ekki hafa jafnfáar nauðganir verið tilkynntar til lögreglu á tímabilinu 2010 til 2023 sem ný skýrsla ríkislögreglustjóra nær yfir.

Að meðaltali eru núna skráðar tilkynningar um 14 nauðganir á mánuði hjá lögreglunni, að því er kemur fram í skýrslunni. 

Í málaskrá lögreglunnar vegna kynferðisbrota er bæði skráð hvenær brot eru tilkynnt og hvenær þau áttu sér stað. Ástæða þess er að í kynferðisbrotum líður oft tími á milli þess að brotið á sér stað og tilkynnt er um það til lögreglu. Þegar horft er til tíma brots, var tilkynnt um 89 nauðganir sem áttu sér stað fyrstu níu mánuði ársins eða 10 nauðganir á mánuði. Það samsvarar 45% færri brotum frá sama tímabili í fyrra.

21% fækkun tilkynninga um kynferðisbrot

Lögreglan skráði samtals 388 tilkynningar um kynferðisbrot á tímabilinu, sem samsvarar tæplega 21% fækkun tilkynninga á milli ára og 1,4 tilkynningum til lögreglu að meðaltali á dag.

Öllum tegundum skráðra kynferðisbrota fækkar samanborið við sama tímabil í fyrra.

Meðalaldur sakborninga í kynferðisbrotamálum er 35 ár. Um 94% grunaðra í kynferðisbrotum eru karlar, meirihlutinn á bilinu 18-45 ára. Meðalaldur brotaþola kynferðisofbeldis er 23 ár og eru 86% brotaþola konur í öllum slíkum málum tilkynntum til lögreglu.

mbl.is