Ákærður fyrir að nauðga barnsmóður sinni ítrekað

Kynferðisbrot | 2. janúar 2024

Karlmaður hefur verið ákærður fyrir stórfelld brot í í nánu sambandi gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni og barnsmóður. Er honum gefið að sök að hafa ítrekað nauðgað henni auk stafræns og andlegs ofbeldis. Alls eru tilgreind tíu tilvik í ákæru, sem er í tólf liðum í heild, þar sem honum er gefið að sök að hafa nauðgað konunni.

Héraðssaksóknari fer með málið.
Héraðssaksóknari fer með málið. mbl.is/Hjörtur

Karlmaður hefur verið ákærður fyrir stórfelld brot í í nánu sambandi gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni og barnsmóður. Er honum gefið að sök að hafa ítrekað nauðgað henni auk stafræns og andlegs ofbeldis. Alls eru tilgreind tíu tilvik í ákæru, sem er í tólf liðum í heild, þar sem honum er gefið að sök að hafa nauðgað konunni.

Karlmaður hefur verið ákærður fyrir stórfelld brot í í nánu sambandi gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni og barnsmóður. Er honum gefið að sök að hafa ítrekað nauðgað henni auk stafræns og andlegs ofbeldis. Alls eru tilgreind tíu tilvik í ákæru, sem er í tólf liðum í heild, þar sem honum er gefið að sök að hafa nauðgað konunni.

Í mörgum tilfellum er hann sagður hafa beitt valdi og haft endaþarmsmök gegn vilja hennar á meðan hún streittist á móti og grét. Þá hafi hann engu skeytt þegar blæddi úr kynfærum hennar þegar þau höfðu samræði eftir barnsburð, en tekið er fram í ákæru að blætt hafi úr kynfærum hennar í nokkra daga eftir atvikin.

Eins er honum gefið að sök að hafa birt nektarmyndir af henni sinni inni í tveimur hópum á vefsíðu án hennar samþykkis.

Auk þess sem honum er gefið framangreint að sök er gerð krafa um að honum verði gert að greiða barnsmóður sinni um fjórar milljónir króna auk vaxta í miskabætur.

mbl.is