Hvar er hlýtt og sólríkt í febrúar?

Sólarlandaferðir | 26. janúar 2024

Hvar er hlýtt og sólríkt í febrúar?

Eftir dimman og kaldan janúarmánuð er fátt sem hljómar betur en sól og hiti á suðrænum slóðum. En hvar skyldi vera hlýtt og sólríkt í febrúar?

Hvar er hlýtt og sólríkt í febrúar?

Sólarlandaferðir | 26. janúar 2024

Hvern dreymir ekki um ferðalag á suðrænar og sólríkar slóðir …
Hvern dreymir ekki um ferðalag á suðrænar og sólríkar slóðir í febrúar? Samsett mynd

Eftir dimman og kaldan janúarmánuð er fátt sem hljómar betur en sól og hiti á suðrænum slóðum. En hvar skyldi vera hlýtt og sólríkt í febrúar?

Eftir dimman og kaldan janúarmánuð er fátt sem hljómar betur en sól og hiti á suðrænum slóðum. En hvar skyldi vera hlýtt og sólríkt í febrúar?

Ferðasérfræðingar hjá Condé Nast Traveller tóku á dögunum saman lista yfir bestu áfangastaðina í febrúar fyrir ferðalanga í leit að sólríku ferðalagi á spennandi slóðir. 

Tenerife, Kanaríeyjar

Það er auðvitað hlýtt og sólríkt á Tenerife, uppáhaldseyju Íslendinga, í febrúar. Þeir sem vilja hlaða batteríin á kunnuglegum slóðum geta alltaf treyst á Tenerife, en þar að auki er þægilegt að fljúga þangað og fjölbreytt gisting í boði. 

Meðalhitinn í febrúar er í kringum 21°C sem er fullkomið eftir gular og appelsínugular viðvaranir hér heima á klakanum. 

Tenerife er alltaf góð hugmynd!
Tenerife er alltaf góð hugmynd! Ljósmynd/Pexels/Oleksandr P

Austurströnd Nýja-Sjálands

Þeir sem eru búnir að fá sig fullsadda af veðrinu á Íslandi og vilja ferðast enn lengra í burtu geta skellt sér til Nýja-Sjálands. Á þessum árstíma er farið að styttast í annan enda sumarsins hinum megin á hnettinum og þykir febrúarmánuður einn besti mánuðurinn til að ferðast meðfram austurströnd Nýja-Sjálands. 

Meðalhitinn í febrúar er í kringum 22°C, en þar að auki býður áfangastaðurinn upp á magnað landslag sem sumum þykir svipa til Íslands á góðum sumardögum. 

Mikil náttúrufegurð einkennir Nýja-Sjáland.
Mikil náttúrufegurð einkennir Nýja-Sjáland. Ljósmynd/Unsplash/Peter Hammer

Oahu, Hawaii

Þú finnur Oahu á milli höfuðborgarinnar Honolulu og rólegri norður- og austurstranda Hawaii. Áfangastaðurinn er sannkallaður draumur fyrir brimbrettafólk og býður ferðalöngum upp á töfrandi suðrænar strendur.

Meðalhitinn í febrúar er í kringum 25°C – fullkomið hitastig til að hlaða batteríin á ströndinni!

Draumur brimbrettafólks!
Draumur brimbrettafólks! Ljósmynd/Pexels/Jess Loiterton

Flórída, Bandaríkjunum 

Íslendingar virðast ekki bara vera hrifnir af Tenerife heldur líka af Flórída, enda eru báðir áfangastaðir fjölskylduvænir og veðursælir. Það er nóg af afþreyingu í boði í borginni fyrir alla aldurshópa, en svo er alltaf vinsælt að leyfa sólinni að sleikja sig við sundlaugabakkann!

Meðalhitinn í febrúar er í kringum 24°C og ætti því að hitta beint í mark hjá Íslendingum sem vilja ylja sér eftir veturinn.

Flórída klikkar ekki!
Flórída klikkar ekki! Ljósmynd/Unsplash/Marcus Lenk

Abu Dhabi

Hitastigið í Abu Dhabi getur verið breytilegt á þessum árstíma, en þrátt fyrir það þá er eitt víst – hitastigið er hlýtt og þurrt í febrúar. Það er nóg hægt að gera í borginni fyrir alla fjölskylduna og það ætti ekki að vera erfitt að fylla aðeins á D-vítamín byrgðirnar þar.

Meðalhitinn í febrúar er í kringum 25°C – milt og ljúft!

Hlýtt og þurrt loftslag hljómar vel!
Hlýtt og þurrt loftslag hljómar vel! Ljósmynd/Unsplash/Jônatas Tinoco
mbl.is