Japönsk yfirvöld hafa óskað eftir því við flugfélög í landinu að ekki verði tekið á móti nýjum bókunum til landsins, vegna ótta við Ómíkron-afbrigði kórónuveirunnar.
Tilkynning þess efnis kom út í dag þar sem sömuleiðis kemur fram að annað tilfelli af Ómíkron-afbrigðinu greindist í dag hjá ferðamanni, degi eftir að fyrsta tilfellið greindist.
„Við höfum óskað eftir því að flugfélög stöðvi bókanir á komuflugum í einn mánuð frá og með 1. desember,“ er haft eftir starfsmanni japanska samgönguráðuneytisins hjá fréttastofu AFP ásamt því að bannið ætti ekki að hafa áhrif á bókanir sem þegar eru til staðar.
Þegar hafa sóttvarnaaðgerðir á landamærum Japan verið hertar og koma frá tíu Afríkulöndum verið bönnuð.