Segist ekki hafa leynt gögnum

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra.
Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra. mbl.is/Ómar Óskarsson

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra stendur við orð sín um að hvorki Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, né Barnaverndarstofa hafi gerst brotleg í starfi. Frá þessu greinir hann í samtali við RÚV í kvöld.

Þá segist hann ekki hafa leynt gögnum um rannsókn á máli Braga, heldur hafi það verið að hans frumkvæði að fá að hitta velferðarnefnd til að ræða möguleg brot Braga í starfi.

Að sögn Ásmundar hefur velferðarnefnd Alþingis sömu gögn undir höndum og velferðarráðuneytið. Gögnin bárust nefndinni á þriðjudag.

Hall­dóra Mo­gensen, formaður vel­ferðar­nefnd­ar Alþing­is, hef­ur boðað Ásmund Ein­ar á fund nefnd­ar­inn­ar mánu­dag­inn. Hall­dóra tel­ur að Ásmund­ur hafi sagt ósatt í þingsal þegar mál­efni for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu voru til umræðu. Þá segir hún að umfjöllun Stundarinnar um málið ýti undir það.

Ásmundur Einar segir að til greina komi að afhenda gögnin fjölmiðlum, að undanskildum persónugreinanlegum gögnum.

Varðandi tilnefningu Braga til setu í Barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna og hvort komi til greina að draga hana til baka segir Ásmundur að það muni skýrast að loknum fundi nefndarinnar á mánudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert